Sælir drengir
Nú tökum við okkur allir gott jólafrí og mætum galvaskir til leiks á nýju ári. Fyrsta
æfing er mánudaginn 7. janúar í Egilshöll 16:20-17:10 (Allir).
Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á nýju fótboltaári.
Passið þið bara að borða ekki yfir ykkur um hátíðarnar og reynið að hreyfa ykkur
eitthvað, það hafa allir gott og gaman að því :) Nýtt ár er góður tímapunktur til að
setja sér skammtíma og langtíma markmið til að eflast sem fótboltamaður og manneskja.
Það er góð leið að skrifa markmiðin niður og hengja þau upp á ísskápinn eða inn í
herbergi.
Síðasta æfingin var skemmtileg rigningaræfing þar sem sett var upp í mót og allir þátttakendur fengu verðlaun (kók og prins). Úrslit mótsins má sjá í töflunni hér að neðan.
Kveðja
Kjartan og Krissi
Friday, December 21, 2012
Wednesday, December 19, 2012
Síðasta æfing - jólamót 5.flokks Fylkis
Sælir strákar
Síðasta æfing fyrir jólafrí er fimmtudaginn 20. desember. Æfingin verður frá 16:45-
18:15 á Fylkisvelli og allir eiga að mæta, þannig að hópaskiptingin á ekki við.
Við ætlum að setja upp í mót og skipta í 6 jöfn lið. Hvert lið finnur sér nafn á
félagsliði (t.d. Man Utd, Barcelona eða Liverpool. Úrslit hvers leiks verða skráð niður og út frá því raða liðin sér í sæti 1-6.
Verðlaun í boði!!! Allir að mæta og enda þetta með stæl fyrir jólafrí
Fyrsta æfing eftir jólafrí verður mánudaginn 7. janúar í Egilshöll.
Jólakveðja

Monday, December 17, 2012
Sunday, December 16, 2012
Frístundarstyrkur
Minni forráðamenn á að nýta frístundastyrkinn vegna 2012 fyrir jól. Hann fyrnist um áramótin
kveðja
þjálfarar
Wednesday, December 12, 2012
Tuesday, December 11, 2012
Keiluferð - Úrslitaþjónustan og rapport
Sæl öll
Það voru svangir fótboltadrengir
sem komu beint af æfingu í Egilshöllinni yfir í Keiluhöllina á mánudag. Áður en
farið var í keilu var byrjuðu strákarnir á því að næra sig á samlokum og drykk.
Það er óhætt að segja allir sem einn hafi staðið sig með stakri prýði enda voru
þeir augljóslega orðnir svangir og þyrstir eftir æfingu dagsins.
Starfsfólk
Keiluhallarinnar hafði einnig orð á því hversu prúðir og kurteisir strákarnir
voru. Höldum því endilega áfram.
Í keilunni dreifðust keppendur á átta
brautir þar sem Krissi og Kjartan tóku sér stöðu meðal jafningja. Keppt var
innbyrðis á milli brauta og til að gera langa sögu stutta þá sýndu
þátttakendur gríðarleg tilþrif en aðeins eitt lið stóð uppi sem sigurvegari í
þetta sinn.
Lið Ívars Andra, Jakobs Arnar,
Jóhanns Bergs, Jóhanns Arnar, Jóns Aðalsteins og Kristófers Leós var
hlutskarpast með alls 601 stig í 10 umferðum eða alls 100,1 stig að meðaltali á
hvern liðsmann. Glæsilegt og til hamingju með þetta strákar. Önnur lið voru
ekki langt undan.
Eftir þessa frammistöðu er
nauðsynlegt að verðlauna sigurvegarana og er það gert með því að allir aðrir
þurfa að heilsa sigurvegurunum á næstu æfingu með handabandi og segja;
„Sæll,meistari!
Það er naumast að þú ert góður í keilu“.
Vonandi skemmtu allir sér vel og
áhugi sé á því að halda fleiri hópeflisferðir í vetur.
Kveðja, Foreldraráð
Saturday, December 8, 2012
Jólamótið
Sælir strákar
Nú er Jólamótinu lokið og okkar liðum gekk upp og niður í dag ef við miðum við úrslit leikja. Ég get alveg sagt ykkur það að við þjálfararnir erum mun meira að velta fyrir okkur hvernig fótbolta við vorum að reyna spila heldur en úrslitum leikja.
Þetta mót er einungis skemmtimót og í raun erfitt að meta leikmenn eftir það, ekki síst þar sem fjórir leikir voru spilaðir og leiktíminn var 1x12 mín (nema hjá C2 og D2 þar sem spilaðir voru tveir leikir 2x12 mín). Þetta kemur út á það sama þ.e. að hvert lið spilaði í 48 mín samtals í dag.
Mótin sem við tökum þátt í eftir áramót eru með allt öðru sniði; Reykjavíkurmót sem hefst líklega í byrjun febrúar og svo Íslandsmótið sem er allt sumarið. Aðeins er spilaður einn leikur í senn og leiktími er 2x20 mínútur (40 mínútur) á tvöfalt stærri velli þ.e.a.s. 1/2 af stórum velli í stað 1/4 eins og var spilað á í dag.
Það er talsvert erfiðara að reyna að spila og halda boltanum innan liðsins á svona þröngum velli. Mat okkar þjálfarana er að Fylkir hafi spilað besta fótboltann í dag, þar sem flest öll hin liðin voru meira í "kick and run" bolta sem við ÆTLUM EKKI að spila. Nokkrir einstaka leikir töpuðust eða glutruðust niður í jafntefli útaf óheppni og/eða klaufagangi hjá okkur fyrir framan markið og í varnarvinnunni. Okkar skilaboð eru skýr: Ekki vera hræddir við að mistakast, því ef að maður má ekki gera mistök í 5.flokki til þess að læra af þeim, hvenær þá? Eftir því sem þið eldist eykst áhersla á keppni og að fækka mistökum til að hámarka árangur.
Gott dæmi: Markvörður ver þrjú dauðafæri í leik (og bjargar þar með þremur mörkum) og reynir alltaf að skila boltanum stutt frá sér á næsta mann ef kostur er. Hann gerir ein mistök sem kosta mark hjá andstæðingnum og leikurinn jafnvel tapast á því. Er þá hægt að segja að markvörðurinn hafi átt slakan
leik? Nei því þegar á heildina er litið átti hann góðan leik.
Mér fannst vanta aðeins meiri gleði í okkar leik. því það að spila fótbolta og keppa í móti á að vera það skemmtilegasta sem þið gerið. Stundum vorum við of fljótir að gefast upp, svekkja okkur og byrja að kenna næsta manni um það sem fór úrskeiðis. Það er í mannlegu eðli og mjög eðlilegt að fara inn í hvern einasta fótboltaleik með það að markmiði að vinna hann. Það má hins vegar ekki verða þannig að þegar að það gengur ekki allt upp að þá missum við leikgleðina og hættum að spila okkar leik.
Ég er sannfærður um að það að breytingin að hafa allar æfingar í 90 mínútur og að bæta inn séræfingu innanhúss (fyrir þá sem vilja og/eða geta) á eftir að skila okkur betri fótboltamönnum á næsta ári 2013. Það sást pínulítið í dag að þeir sem hafa ekki verið alveg nógu duglegir að æfa áttu stundum í smá vandræðum með grunnatriði leiksins (sendingar og móttökur), því hvet ég ykkur alla til að æfa vel og leggja hart að ykkur, bæði á æfingum og utan þeirra. Það mun skila sér í framförum bæði hjá einstaklingum og okkur sem liði.
Áfram Fylkir!
kveðja
Krissi þjálfari

Thursday, December 6, 2012
Jólamót liðsskipan og mætingartímar
| Jólamót KRR laugardaginn 8.desember í Egilshöll. Liðsskipan: A-lið mæting kl. 12:00. Daníel Bjartmar Valsson (M) |
| Ísak Miri Daníelsson |
| Leó Ernir Reynisson |
| Orri Hrafn Kjartansson |
| Arnþór Snær Þorsteinsson |
| Stígur Annel Ólafsson |
| Jóhann Örn Ómarsson |
| Valdimar Örn Emilsson (F) B-lið mæting kl. 12:15 |
| Bjarni Freyr Valgeirsson (M) Hákon Ísar Hilmisson |
| Ívar Andri Gíslason |
| Númi Steinn Hallgrímsson |
| Ingvar Hálfdán Ólafsson |
| Axel Máni Guðbjörnsson |
| Heiðar Ingi Geirsson |
| Jakob Örn Heiðarsson (F) C1 lið. Mæting kl. 12:00 |
| Ólafur Kristófer Helgason (M) Arnar Máni Sigurjónsson (F) |
| Haukur Ingi Steindórsson |
| Hrannar Ingi Arnarsson |
| Magnús Ari Björnsson |
| Sebastian Óli Guðmundsson |
| Ævar Daði Stefánsson |
| Kári Sigfússon |
C2 lið mæting kl. 14:30 Jón Hákon Garðarsson (M) |
| Aron Markús Sigurjónsson |
| Baldur Einarsson |
| Dagbjartur Alex Guðmundsson |
| Egill Orri Elvarsson |
| Einar Eyjólfsson (F) |
| Ægir Óli Ólafsson |
| Tindur Örvar Örvarsson |
| D1 lið mæting 12:15 Dagur Edvard Kristinsson (M) Kristofer Leó Davíðsson |
| Aron Örn Þorvarðarson |
| Egill Orri Valgeirsson |
| Gabríel Máni Ómarsson (F) |
| Valgeir Viðar Jakobsson |
| Jón Guðni Georgsson |
| Daníel Aron Davíðsson |
| Sævar Þór Sveinsson D2 lið mæting kl. 14:45 Hjalti Sævar Björgvinsson (M) |
| Jóhann Bergur Jóhannesson |
| Jón Aðalsteinn Ólafsson |
| Helgi Valur Snorrason |
| Stefán Atli Gunnarsson (F) |
| Dagur Breki Júlíusson |
| Dagur Ingi Ingason |
| Óskar Freyr Snorrason |
| Erik Halldórsson |
Wednesday, December 5, 2012
Æfing og bíóferð
Sæl
Æfing fimmtud. 6.desember kl. 16:15-17:15 á Fylkisvelli (Allir). Bara spil. Valfrjáls mæting, þeir sem vilja taka sér frí útaf bíóferðinni geta gert það, hinir mæta sprækir :)
Bíóferð BUR fyrir alla kl. 17:50 í Egilshöll.
kveðja
Krissi og Kjartan

Breytingar á hópeflisferð - Keila í stað bíó
Eins og fram kom í tölvupósti fyrr í dag hefur verið ákveðið að breyta hópeflisferð flokksins þar sem barna- og unglingaráð er með bíósýningu fimmtudaginn 6.12.
Breytingin hjá 5. flokki er sem sagt sú að strax eftir æfingu í Egilshöll nk. mánudag verður farið í Keiluhöllina og fengið sér samloku og gos og í framhaldi af því í keilu í klukkutíma
Kostnaður á hvern strák er 1.500 kr. og það væri gaman ef sem flestir sæju sér fært að mæta þannig að sem besta stemmingin myndaðist.
Fyrri skráningu vegna bíóferðar hefur verið eytt þannig að vinsamlegast skráið ykkur aftur fyrir keiluferðina.
Við minnum einnig á upplýsingar vegna fyrstu fjáröflunar vetrarins hér fyrir neðan.
Kv. Foreldraráð

Fyrsta fjáröflun vetrarins
Nú er komið
að fyrstu fjáröflun tímabilsins þar sem srákunum gefst tækifæri til að safna
fyrir verkefnum ársins. Salan er
eyrnamerkt þeim sem safna og söluhagnaður lagður inn á bankareikning í nafni viðkomandi
stráks.
Þei sem ætla
að taka þátt verða að fylla inn í þartilgert skjal á Blogginu í síðasta lagi mánudaginn 10. des.
Vörurnar
verða síðan afhentar upp í Fylkishöll fimmtudaginn 13. des milli kl. 17:30
og 18:30 Pantið það magn sem þið
ætlið að selja.
Yfirlit yfir vörur má finna hér.
Söluskjal má finna hér.
Nánara yfirlit yfir verð og hagnað má finna hér.
Í lok vikunnar setjum við svo upp form þar sem þið getið skráð hvað þið hafið selt. Nánari upplýsingar verða sendar út þegar skráningarformið er tilbúð.
Greiða verður fyrir vörurnar fyrir afhendingu og koma með kvittun þegar vörurnar eru sóttar.
Greiða verður fyrir vörurnar fyrir afhendingu og koma með kvittun þegar vörurnar eru sóttar.
Leggið inn á reikning flokksins nr. 0535-05-400350, kt: 571083-0199
Kveðja
Foreldraráð 5. flokks karla
Tuesday, December 4, 2012
Jólamótið 8.des
Jólamót KRR fer fram í Egilshöll 8.desember. Allir leikir fara fram eftir hádegi. Við erum skráð með 6 lið til keppni. Hvert lið spilar 4 leiki og leiktími er 1x12 mínútur.
A og C1 lið eiga fyrsta leik kl. 12:30 og síðasta leik kl. 14:30
B og D1 lið eiga fyrsta leik kl. 12:45 og síðasta leik kl. 14:45
C2 lið á fyrsta leik kl. 15:00 og síðasta leik kl. 17:00
D2 lið á fyrsta leik kl. 15:15 og síðasta leik kl. 17:15
Í stað þess að strákarnir þurfi að skrá sig til leiks reiknum við þjálfarar með að allir verði með. Þeir sem komast ekki verða því að tilkynna forföll skriflega þ.e.a.s. með commenti á bloggið, facebook eða með því að senda tölvupóst á fylkir55@gmail.com. Ekki er nóg að láta vita munnlega á æfingu.
Stefnt er að því að setja inn liðsskipan á fimmtudagskvöldið 6.des eftir æfingu :)
kveðja
K&K

Sunday, December 2, 2012
Thursday, November 29, 2012
Skjal með æfingatímum flokksins
Inga setti saman skjal sem inniheldur æfingatímana hjá 5. flokki. Gott að prenta skjalið út og hengja upp heima.
Skjalið má finna hér
Skjalið má finna hér
Wednesday, November 28, 2012
Æfing fimmtudag 29. nóv
Æfing fimmtudag 29. nóv
Hópur 1 16:15-17:45
Hópur 2 17:00-18:30
Sjáumst hressir og munum eftir legghlífunum :)
kveðja
þjálfarar
Hópur 1 16:15-17:45
Hópur 2 17:00-18:30
Sjáumst hressir og munum eftir legghlífunum :)
kveðja
þjálfarar
Tuesday, November 27, 2012
Séræfing miðvikudag
Séræfing fyrir þá sem eru skráðir miðvikudag 28. nóv. í Norðlingaskóla kl. 19:00-20:00
kveðja
þjálfarar
kveðja
þjálfarar
Þriðjudagur
ATH...
Æfing í dag kl. 16:30 - 18:00 allir saman.
Það verða allir saman á æfingu í dag vegna þess að það er leikur á vellinum kl. 18:00
Æfing í dag kl. 16:30 - 18:00 allir saman.
Það verða allir saman á æfingu í dag vegna þess að það er leikur á vellinum kl. 18:00
Sunday, November 25, 2012
Æfing í Egilshöll
Æfing í dag mánudag 26. nóvember í Egilshöll
kl. 16:10-17:20 (ALLIR)
kveðja
þjálfarar
kl. 16:10-17:20 (ALLIR)
kveðja
þjálfarar
Breyting hjá hópi 2
Sæl
Enn og aftur er smávægileg breyting á æfingartíma. Hópur 2 mun æfa frá kl. 17:00-18:30 á þriðjudögum og fimmtudögum í stað þess að æfa 17:15-18:45. Er þetta gert til þess að við getum nýtt völlinn betur en meistaraflokkur karla á allan völlinn frá 18:30 á þriðjudögum og sama með 3.flokk karla á fimmtudögum.
Æfingatíminn breytist ekki hjá hópi 1.
Æfingartímarnir eru því eftirtaldir (svo þetta liggi allt saman skýrt fyrir):
Mánudagar
Fylkisvöllur
Allir saman kl. 16:45 - 18:15
*Egilshöll annan hvern mánudag
Allir saman kl. 16:10-17:20
Þriðjudagar
Fylkisvöllur
Hópur 1 kl. 16:15 - 17:45
Hópur 2 kl. 17:00 - 18:30
Miðvikudagar
Norðlingaskóli
Séræfing kl. 19:00 - 20:00
*Fyrir þá sem eru skráðir
Fimmtudagar
Fylkisvöllur
Hópur 1 kl. 16:15 - 17:45
Hópur 2 kl. 17:00 -18:30

Thursday, November 22, 2012
Jólamót
Jólamót KRR fyrir 5.flokk karla er áætlað laugardaginn 8.desember í Egilshöll.
Nánar síðar
kveðja
þjálfarar
Nánar síðar
kveðja
þjálfarar
Wednesday, November 21, 2012
Æfing fimmtudag
Æfing fimmtudag 22. nóvember Fylkisvelli
Hópur 1 16:15-17:45
Hópur 2 17:15-18:45
Sjáumst ferskir
www.101greatgoals.com/gvideos/greatest-champions-league-goal-ever-philippe-mexes-ac-milan-v-anderlecht/
Sá sem skorar svona mark á æfingunni fær eiginhandaráritun frá mér og Kjartani :)
kveðja
Krissi

Tuesday, November 20, 2012
Séræfing
Sælir strákar
Séræfing fyrir þá sem eru skráðir í kvöld miðvikudag 21. nóvember frá kl. 19:00-20:00 í Norðlingaskóla.
Við viljum minna ykkur sérstaklega á að það er skylda að vera með legghlífar á séræfingunum eins og öðrum æfingum. Þið eruð að æfa ykkur í tæknilegri færni og ykkur á ekki að líða óþægilega í legghlífum. Munið að það sem að þið framkvæmið á æfingum, framkvæmið þið í leikjum líka. Í öllum leikjum sem við spilum er skylda að vera í legghlífum og því er gott fyrir okkur að venjast því að vera með legghlífar ALLTAF !

Monday, November 19, 2012
Æfing í dag
Æfing í dag þriðjudag 20. nóvember
Fylkisvöllur
Hópur 1 16:15-17:45
Hópur 2 17:15-18:45
Hópaskiptingu má finna hægra megin hér á bloggsíðunni!
Eins og við komið hefur fram leggjum við mikla áherslu á að menn klæði sig eftir veðri. Eins og kom skýrt fram á síðustu æfingu geta menn átt von á því hér eftir að vera sendir heim ef þeir eru illa klæddir eða ekki í viðeigandi búnaði (legghlífar, takkaskór/gervigrasskór).
kveðja
K & K
Saturday, November 17, 2012
Lengri æfingar og ný hópaskipting
Kæru iðkendur og foreldrar
Í næstu viku munu talsverðar breytingar eiga sér stað hjá okkur. Allar æfingar munu lengjast og verða 90 mínútur í stað 60 mínútna (undantekning æfing í Egilshöll annan hvern mánudag sem er 70 mínútur).
Æfingartímarnir verða eftirfarandi:
Æfingar í Egilshöll verða annan hvern mánudag og séræfingarnar eru einungis fyrir þá sem hafa skráð sig á þær!
Eins og þið sjáið verður skipt í nýja æfingahópa í stað þess að yngra ár æfi sér og eldra ár sér . Meginmarkmiðið með þessu að auka gæði æfinga, að allir fái verkefni við hæfi og fái að vaxa og dafna sem leikmenn. Athugið að hópaskiptingin getur tekið breytingum og að menn geta færst milli hópa ef við þjálfarar metum það svo. Í grófum dráttum mun þó skiptingin halda, en við viljum taka það fram að engar dyr eru lokaðar fyrir það að menn færist milli hópa.
Hópaskiptingin er eftirfarandi:
Hópur 1:

| Mánudagar: | ||
| Allir | 16:45 - 18:15 | Fylkisvöllur |
| Allir | 16:10 - 17:20 | Egilshöll |
| Þriðjudagar: | ||
| Hópur 1 | 16:15 - 17:45 | Fylkisvöllur |
| Hópur 2 | 17:15 - 18:45 | Fylkisvöllur |
| Miðvikudagar: | ||
| Séræfing | 19:00 - 20:00 | Norðlingaskóli |
| Fimmtudagar: | ||
| Hópur 1 | 16:15 - 17:45 | Fylkisvöllur |
| Hópur 2 | 17:15 - 18:45 | Fylkisvöllur |
Æfingar í Egilshöll verða annan hvern mánudag og séræfingarnar eru einungis fyrir þá sem hafa skráð sig á þær!
Eins og þið sjáið verður skipt í nýja æfingahópa í stað þess að yngra ár æfi sér og eldra ár sér . Meginmarkmiðið með þessu að auka gæði æfinga, að allir fái verkefni við hæfi og fái að vaxa og dafna sem leikmenn. Athugið að hópaskiptingin getur tekið breytingum og að menn geta færst milli hópa ef við þjálfarar metum það svo. Í grófum dráttum mun þó skiptingin halda, en við viljum taka það fram að engar dyr eru lokaðar fyrir það að menn færist milli hópa.
Hópaskiptingin er eftirfarandi:
Hópur 1:
| Aron Örn Þorvarðarson | ||||||||||||||||||||||||||
| Baldur Einarsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Dagbjartur Alex Guðmundsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Dagur Breki Júlíusson | ||||||||||||||||||||||||||
| Dagur Edvard Kristinsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Dagur Ingi Ingason | ||||||||||||||||||||||||||
| Daníel Aron Davíðsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Egill Orri Elvarsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Egill Orri Valgeirsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Einar Eyjólfsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Erik Halldórsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Gabríel Máni Ómarsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Helgi Valur Snorrason | ||||||||||||||||||||||||||
| Hjalti Sævar Björgvinsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Jóhann Bergur Jóhannesson | ||||||||||||||||||||||||||
| Jón Aðalsteinn Ólafsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Jón Guðni Georgsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Jón Hákon Garðarsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Kristofer Leó Davíðsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Máni Kárason | ||||||||||||||||||||||||||
| Ómar | ||||||||||||||||||||||||||
| Óskar Freyr Snorrason | ||||||||||||||||||||||||||
| Stefán Atli Gunnarsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Sævar Þór Sveinsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Tindur Örvar Örvarsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Valgeir Viðar Jakobsson | ||||||||||||||||||||||||||
| Vilhjálmur Reynir Traustason | ||||||||||||||||||||||||||
| Ægir Óli Ólafsson Hópur 2:
|
kveðja
Kjartan og Krissi
Friday, November 16, 2012
Markmannsæfingar
Markmannsæfingar fyrir markmenn í yngri flokkum Fylkis verða á fimmtudagskvöldum kl. 19-20 í Norðlingaskóla í vetur.
Hvet ég alla markmenn flokksins og þá sem hafa áhuga á að prófa að æfa mark að mæta á þessar æfingar. Það er mjög jákvætt að markmannsæfingarnar séu komnar í gang, enda markvarðarstaðan ein sú mikilvægasta, ef ekki sú allra mikilvægasta á vellinum.
Ísland á ekki marga markverði í alþjóðlegum klassa og örfáa sem spila erlendis á meðan að við eigum ógrynni af leikmönnum erlendis í öðrum leikstöðum. Ein af meginástæðum þess að mínu mati er að við höfum vanrækt markmannsþjálfun í yngri flokkum og eru þjálfarar sífellt að vera meðvitaðari um mikilvægi séræfinga fyrir markmenn.
Síðasta vetur sáu þeir Hermann Valsson og Ólafur Íshólm Ólafsson um markmannsæfingarnar og veit ég ekki betur en að þeir haldi áfram í vetur. Hermann er reyndur markmannsþjálfari sem hefur m.a. unnið með unglingalandsliðum Íslands og Ólafur er varamarkvörður m.fl. Fylkis og aðalmarkvörður 2.flokks og er þar gríðarlega efnilegur markvörður á ferð.

Næsta markmannsæfing er 22. nóvember!
kveðja
Krissi
Thursday, November 15, 2012
Fimmtudagur
Æfing í dag
Yngri kl. 16:15 - 17:15
Eldri kl. 17:15 - 18:15
Það eiga allir að vera með legghlífar, húfu og vettlinga. Það má búast við rigningu og því er gott að koma í regnfötum.
Kveðja
Þjálfarar
Yngri kl. 16:15 - 17:15
Eldri kl. 17:15 - 18:15
Það eiga allir að vera með legghlífar, húfu og vettlinga. Það má búast við rigningu og því er gott að koma í regnfötum.
Kveðja
Þjálfarar
Monday, November 12, 2012
Thursday, November 8, 2012
Tuesday, November 6, 2012
Séræfingar
Séræfingar í 5.flokki
Þjálfarar í 5. flokki karla og kvenna ætla í samvinnu við
foreldraráðin að bjóða öllum iðkendum í 5.flokki upp á séræfingar í vetur. Vegna
fjölda óska um séræfingar og aukið æfingamagn ætla þjálfarar að bjóða upp á
námskeið sem nær frá nóvember til lok maí eða alls 20 skipti.
Áhersla verður fyrst og fremst lögð á að bæta tæknilega
getu iðkenda. Þessi aldurshópur er á besta hreyfinámsaldrinum, skilyrði til tækniþjálfunar
eru afar góð og svigrúm til framfara er mikið. Áhersla verður lögð á fáa þætti
þar sem hlutirnir verða endurteknir aftur og aftur. Þetta stendur iðkendum til
boða gegn mjög vægu gjaldi, sérstaklega ef litið er til ýmissa námskeiða sem í
boði eru annarsstaðar.
Drengir æfa á miðvikudögum kl. 19:00 – 20:00 í
Norðlingaholtsskóla. Fyrsta æfing er miðvikudaginn 14.nóv.
Þjálfarar á námskeiðinu eru Kjartan Stefánsson 5.fl kk,
Kristján Gylfi Guðmundsson 5.fl kk og Hörður Guðjónsson 5.fl kvk.
Námskeiðið kostar 10.000 kr.
Skráning fyrir 5.flokk karla fer fram með því að senda
tölvupóst með nafni iðkanda á fylkir55@gmail.com
Greiðslufyrirkomulag verður tilkynnt eftir fyrsta fund þjálfara og foreldraráðs
Greiðslufyrirkomulag verður tilkynnt eftir fyrsta fund þjálfara og foreldraráðs
Monday, November 5, 2012
Thursday, November 1, 2012
Fimmtudagur
Æfing í dag
kl: 16:15 - 17:15 yngri
kl. 17:15 - 18:15 eldri
Það er kalt í dag drengir og það á að koma vel klæddur á æfingu með legghlífar
kl: 16:15 - 17:15 yngri
kl. 17:15 - 18:15 eldri
Það er kalt í dag drengir og það á að koma vel klæddur á æfingu með legghlífar
Monday, October 29, 2012
Sunday, October 28, 2012
Friday, October 26, 2012
Æfingaleikir gegn Fram liðsskipan og mætingartímar
Æfingaleikir gegn Fram laugardaginn 27. október á Framvelli í Safamýri.
A-lið. Mæting kl. 9:10. Leikur hefst kl. 9:30
Daníel B, Ísak, Valdimar, Leó, Stígur, Orri, Heiðar, Jakob
B-lið. Mæting kl. 9:50. Leikur hefst kl. 10:10
Bjarni, Ingvar, Hákon, Númi, Ívar Andri, Axel. Heiðar og Jakob spila líka með B-liði.
C-lið. Mæting kl. 10:30. Leikur hefst kl. 10:50
Ólafur K, Sebastian Óli, Hrannar, Arnar Máni, Aron Markús, Haukur, Jón Orri, Kári, Gabríel Máni.
D-lið. Mæting kl. 9:50. Leikur hefst kl. 10:10
Jón Hákon, Baldur, Dagbjartur, Einar, Ægir Óli, Kristófer Leó, Mikael (6.fl), Egill Orri E., Tindur.
E-lið. Mæting kl. 10:30. Leikur hefst kl. 10:50
Daníel Aron, Dagur Ingi, Dagur Breki, Jóhann Bergur, Jón Aðalsteinn, Vilhjálmur Reynir, Sævar Þór, Stefán Atli.

Wednesday, October 24, 2012
Æfingaleikur við Fram 27. október
Sæl öll
Æfingaleikurinn við Fram á laugardaginn (27. október) verður ekki í Egilshöll heldur á Framvellinum í Safamýri. Við stefnum að því að vera með 5 lið sem eiga að mæta á mismunandi tíma (hvert lið spilar einn leik 2 x 20 mínútur). Leikirnir verða frá kl. 9:30-11:30. Vegna þessa biðjum við þá sem ætla mæta að skrá sig til leiks fyrir kl. 17:00 á föstudag. Endilega líka að láta vita þeir sem komast ekki. Hægt er að skrá sig með kommenti á bloggið, facebook eða með því að senda tölvupóst á fylkir55@gmail.com. Liðsskipan og mætingartímar koma svo inn á föstudaginn.

Saturday, October 20, 2012
Wednesday, October 17, 2012
Æfingaleikir í Egilshöll á laugardaginn 20.okt
Æfingaleikir við Val og Fjölni á laugardaginn 20.október í Egilshöll kl. 8:00-10:00. Mæting kl. 7:45. Allir eiga að mæta! Endilega að láta vita ef að þið komist ekki!
Subscribe to:
Posts (Atom)