Thursday, November 29, 2012

Skjal með æfingatímum flokksins

Inga setti saman skjal sem inniheldur æfingatímana hjá 5. flokki. Gott að prenta skjalið út og hengja upp heima.

Skjalið má finna hér

Wednesday, November 28, 2012

Æfing fimmtudag 29. nóv

Æfing fimmtudag 29. nóv

Hópur 1 16:15-17:45
Hópur 2 17:00-18:30

Sjáumst hressir og munum eftir legghlífunum :)

kveðja
þjálfarar



Tuesday, November 27, 2012

Séræfing miðvikudag

Séræfing fyrir þá sem eru skráðir miðvikudag 28. nóv. í Norðlingaskóla kl. 19:00-20:00

kveðja
þjálfarar

Þriðjudagur

ATH...
Æfing í dag kl. 16:30 - 18:00 allir saman.
Það verða allir saman á æfingu í dag vegna þess að það er leikur á vellinum kl. 18:00

Sunday, November 25, 2012

Æfing í Egilshöll

Æfing í dag mánudag 26. nóvember í Egilshöll
kl. 16:10-17:20 (ALLIR)

kveðja
þjálfarar

Breyting hjá hópi 2

Sæl

Enn og aftur er smávægileg breyting á æfingartíma. Hópur 2 mun æfa frá kl. 17:00-18:30 á þriðjudögum og fimmtudögum í stað þess að æfa 17:15-18:45. Er þetta gert til þess að við getum nýtt völlinn betur en meistaraflokkur karla á allan völlinn frá 18:30 á þriðjudögum og sama með 3.flokk karla á fimmtudögum.

Æfingatíminn breytist ekki hjá hópi 1.

Æfingartímarnir eru því eftirtaldir (svo þetta liggi allt saman skýrt fyrir):


Mánudagar
Fylkisvöllur
Allir saman  kl. 16:45 - 18:15

*Egilshöll annan hvern mánudag
Allir saman kl. 16:10-17:20

Þriðjudagar
Fylkisvöllur
Hópur 1  kl. 16:15 - 17:45
Hópur 2  kl. 17:00 - 18:30


Miðvikudagar
Norðlingaskóli
Séræfing kl. 19:00 - 20:00
*Fyrir þá sem eru skráðir


Fimmtudagar
Fylkisvöllur
Hópur 1  kl. 16:15 - 17:45
Hópur 2  kl. 17:00 -18:30


kveðja
Krissi og Kjartan

Thursday, November 22, 2012

Jólamót

Jólamót KRR fyrir 5.flokk karla er áætlað laugardaginn 8.desember í Egilshöll.

Nánar síðar

kveðja
þjálfarar

Wednesday, November 21, 2012

Æfing fimmtudag

Æfing fimmtudag 22. nóvember Fylkisvelli

Hópur 1 16:15-17:45
Hópur 2 17:15-18:45

Sjáumst ferskir

www.101greatgoals.com/gvideos/greatest-champions-league-goal-ever-philippe-mexes-ac-milan-v-anderlecht/

Sá sem skorar svona mark á æfingunni fær eiginhandaráritun frá mér og Kjartani :)

kveðja

Krissi

Tuesday, November 20, 2012

Séræfing

Sælir strákar

Séræfing fyrir þá sem eru skráðir í kvöld miðvikudag 21. nóvember frá kl. 19:00-20:00 í Norðlingaskóla.

Við viljum minna ykkur sérstaklega á að það er skylda að vera með legghlífar á séræfingunum eins og öðrum æfingum. Þið eruð að æfa ykkur í tæknilegri færni og ykkur á ekki að líða óþægilega í legghlífum. Munið að það sem að þið framkvæmið á æfingum, framkvæmið þið í leikjum líka. Í öllum leikjum sem við spilum er skylda að vera í legghlífum og því er gott fyrir okkur að venjast því að vera með legghlífar ALLTAF !

kveðja

þjálfarar

Monday, November 19, 2012

Æfing í dag


Æfing í dag þriðjudag 20. nóvember

Fylkisvöllur

Hópur 1 16:15-17:45
Hópur 2 17:15-18:45

Hópaskiptingu má finna hægra megin hér á bloggsíðunni!

Eins og við komið hefur fram leggjum við mikla áherslu á að menn klæði sig eftir veðri. Eins og kom skýrt fram á síðustu æfingu geta menn átt von á því hér eftir að vera sendir heim ef þeir eru illa klæddir eða ekki í viðeigandi búnaði (legghlífar, takkaskór/gervigrasskór).

kveðja

K & K

Saturday, November 17, 2012

Lengri æfingar og ný hópaskipting

Kæru iðkendur og foreldrar

Í næstu viku munu talsverðar breytingar eiga sér stað hjá okkur. Allar æfingar munu lengjast og verða 90 mínútur í stað 60 mínútna (undantekning æfing í Egilshöll annan hvern mánudag sem er 70 mínútur).

Æfingartímarnir verða eftirfarandi:

Mánudagar:
Allir 16:45 - 18:15 Fylkisvöllur
Allir 16:10 - 17:20 Egilshöll
Þriðjudagar:
Hópur 1 16:15 - 17:45 Fylkisvöllur
Hópur 2 17:15 - 18:45 Fylkisvöllur
Miðvikudagar:
Séræfing  19:00 - 20:00  Norðlingaskóli

Fimmtudagar:
Hópur 1 16:15 - 17:45 Fylkisvöllur
Hópur 2 17:15 - 18:45 Fylkisvöllur


Æfingar í Egilshöll verða annan hvern mánudag og séræfingarnar eru einungis fyrir þá sem hafa skráð sig á þær!

Eins og þið sjáið verður skipt í nýja æfingahópa í stað þess að yngra ár æfi sér og eldra ár sér . Meginmarkmiðið með þessu að auka gæði æfinga, að allir fái verkefni við hæfi og fái að vaxa og dafna sem leikmenn. Athugið að hópaskiptingin getur tekið breytingum og að menn geta færst milli hópa ef við þjálfarar metum það svo. Í grófum dráttum mun þó skiptingin halda, en við viljum taka það fram að engar dyr eru lokaðar fyrir það að menn færist milli hópa.

Hópaskiptingin er eftirfarandi:

Hópur 1:

Aron Örn Þorvarðarson
Baldur Einarsson
Dagbjartur Alex Guðmundsson
Dagur Breki Júlíusson
Dagur Edvard Kristinsson
Dagur Ingi Ingason
Daníel Aron Davíðsson
Egill Orri Elvarsson
Egill Orri Valgeirsson
Einar Eyjólfsson
Erik Halldórsson
Gabríel Máni Ómarsson
Helgi Valur Snorrason
Hjalti Sævar Björgvinsson
Jóhann Bergur Jóhannesson
Jón Aðalsteinn Ólafsson
Jón Guðni Georgsson
Jón Hákon Garðarsson
Kristofer Leó Davíðsson
Máni Kárason
Ómar
Óskar Freyr Snorrason
Stefán Atli Gunnarsson
Sævar Þór Sveinsson
Tindur Örvar Örvarsson
Valgeir Viðar Jakobsson
Vilhjálmur Reynir Traustason
Ægir Óli Ólafsson

Hópur 2:

Arnar Máni Sigurjónsson
Arnþór Snær Þorsteinsson
Aron Markús Sigurjónsson
Axel Máni Guðbjörnsson
Bjarni Freyr Valgeirsson
Daníel Bjartmar Valsson
Haukur Ingi Steindórsson
Hákon Ísar Hilmisson
Heiðar Ingi Geirsson
Hrannar Ingi Arnarsson
Ingvar Hálfdán Ólafsson
Ísak Miri Daníelsson
Ívar Andri Gíslason
Jakob Örn Heiðarsson
Jóhann Örn Ómarsson
Jón Orri Stefánsson
Kári Sigfússon
Leó Ernir Reynisson
Magnús Ari Björnsson
Númi Steinn Hallgrímsson
Orri Hrafn Kjartansson
Ólafur Kristófer Helgason
Sebastian Óli Guðmundsson
Stígur Annel Ólafsson
Valdimar Örn Emilsson
Ævar Daði Stefánsson

kveðja

Kjartan og Krissi

Friday, November 16, 2012

Markmannsæfingar

Markmannsæfingar fyrir markmenn í yngri flokkum Fylkis verða á fimmtudagskvöldum kl. 19-20 í Norðlingaskóla í vetur.

Hvet ég alla markmenn flokksins og þá sem hafa áhuga á að prófa að æfa mark að mæta á þessar æfingar. Það er mjög jákvætt að markmannsæfingarnar séu komnar í gang, enda markvarðarstaðan ein sú mikilvægasta, ef ekki sú allra mikilvægasta á vellinum.

Ísland á ekki marga markverði í alþjóðlegum klassa og örfáa sem spila erlendis á meðan að við eigum ógrynni af leikmönnum erlendis í öðrum leikstöðum. Ein af meginástæðum þess að mínu mati er að við höfum vanrækt markmannsþjálfun í yngri flokkum og eru þjálfarar sífellt að vera meðvitaðari um mikilvægi séræfinga fyrir markmenn.

Síðasta vetur sáu þeir Hermann Valsson og Ólafur Íshólm Ólafsson um markmannsæfingarnar og veit ég ekki betur en að þeir haldi áfram í vetur. Hermann er reyndur markmannsþjálfari sem hefur m.a. unnið með unglingalandsliðum Íslands og Ólafur er varamarkvörður m.fl. Fylkis og aðalmarkvörður 2.flokks og er þar gríðarlega efnilegur markvörður á ferð.

Næsta markmannsæfing er 22. nóvember!

kveðja
Krissi

Thursday, November 15, 2012

Fimmtudagur

Æfing í dag
Yngri kl. 16:15 - 17:15
Eldri kl. 17:15 - 18:15

Það eiga allir að vera með legghlífar, húfu og vettlinga.  Það má búast við rigningu og því er gott að koma í regnfötum.
Kveðja
Þjálfarar

Monday, November 12, 2012

Þriðjudagur

Æfing í dag
Yngri  16:15 - 17:15
Eldri   17:15 - 18:15

Thursday, November 8, 2012

Fimmtudagur

Æfing í dag :
Yngri  16:15 - 17:15
Eldri   17:15 - 18:15

Tuesday, November 6, 2012

Séræfingar


Séræfingar í 5.flokki

Þjálfarar í 5. flokki karla og kvenna ætla í samvinnu við foreldraráðin að bjóða öllum iðkendum í 5.flokki upp á séræfingar í vetur. Vegna fjölda óska um séræfingar og aukið æfingamagn ætla þjálfarar að bjóða upp á námskeið sem nær frá nóvember til lok maí eða alls 20 skipti. 

Áhersla verður fyrst og fremst lögð á að bæta tæknilega getu iðkenda. Þessi aldurshópur er á besta hreyfinámsaldrinum, skilyrði til tækniþjálfunar eru afar góð og svigrúm til framfara er mikið. Áhersla verður lögð á fáa þætti þar sem hlutirnir verða endurteknir aftur og aftur. Þetta stendur iðkendum til boða gegn mjög vægu gjaldi, sérstaklega ef litið er til ýmissa námskeiða sem í boði eru annarsstaðar.
   
Drengir æfa á miðvikudögum kl. 19:00 – 20:00 í Norðlingaholtsskóla. Fyrsta æfing er miðvikudaginn 14.nóv.

Þjálfarar á námskeiðinu eru Kjartan Stefánsson 5.fl kk, Kristján Gylfi Guðmundsson 5.fl kk og Hörður Guðjónsson 5.fl kvk.

Námskeiðið kostar 10.000 kr.

Skráning fyrir 5.flokk karla fer fram með því að senda tölvupóst með nafni iðkanda á fylkir55@gmail.com

Greiðslufyrirkomulag verður tilkynnt eftir fyrsta fund þjálfara og foreldraráðs

Monday, November 5, 2012

Æfing þriðjudag

Æfing þriðjudag 6. nóvember!

yngri: 16:15-17:15
eldri: 17:15-18:15


Thursday, November 1, 2012

Fimmtudagur

Æfing í dag
kl: 16:15 - 17:15 yngri
kl. 17:15 - 18:15 eldri

Það er kalt í dag drengir og það á að koma vel klæddur á æfingu með legghlífar