Friday, November 16, 2012

Markmannsæfingar

Markmannsæfingar fyrir markmenn í yngri flokkum Fylkis verða á fimmtudagskvöldum kl. 19-20 í Norðlingaskóla í vetur.

Hvet ég alla markmenn flokksins og þá sem hafa áhuga á að prófa að æfa mark að mæta á þessar æfingar. Það er mjög jákvætt að markmannsæfingarnar séu komnar í gang, enda markvarðarstaðan ein sú mikilvægasta, ef ekki sú allra mikilvægasta á vellinum.

Ísland á ekki marga markverði í alþjóðlegum klassa og örfáa sem spila erlendis á meðan að við eigum ógrynni af leikmönnum erlendis í öðrum leikstöðum. Ein af meginástæðum þess að mínu mati er að við höfum vanrækt markmannsþjálfun í yngri flokkum og eru þjálfarar sífellt að vera meðvitaðari um mikilvægi séræfinga fyrir markmenn.

Síðasta vetur sáu þeir Hermann Valsson og Ólafur Íshólm Ólafsson um markmannsæfingarnar og veit ég ekki betur en að þeir haldi áfram í vetur. Hermann er reyndur markmannsþjálfari sem hefur m.a. unnið með unglingalandsliðum Íslands og Ólafur er varamarkvörður m.fl. Fylkis og aðalmarkvörður 2.flokks og er þar gríðarlega efnilegur markvörður á ferð.

Næsta markmannsæfing er 22. nóvember!

kveðja
Krissi

No comments:

Post a Comment