Tuesday, November 6, 2012

Séræfingar


Séræfingar í 5.flokki

Þjálfarar í 5. flokki karla og kvenna ætla í samvinnu við foreldraráðin að bjóða öllum iðkendum í 5.flokki upp á séræfingar í vetur. Vegna fjölda óska um séræfingar og aukið æfingamagn ætla þjálfarar að bjóða upp á námskeið sem nær frá nóvember til lok maí eða alls 20 skipti. 

Áhersla verður fyrst og fremst lögð á að bæta tæknilega getu iðkenda. Þessi aldurshópur er á besta hreyfinámsaldrinum, skilyrði til tækniþjálfunar eru afar góð og svigrúm til framfara er mikið. Áhersla verður lögð á fáa þætti þar sem hlutirnir verða endurteknir aftur og aftur. Þetta stendur iðkendum til boða gegn mjög vægu gjaldi, sérstaklega ef litið er til ýmissa námskeiða sem í boði eru annarsstaðar.
   
Drengir æfa á miðvikudögum kl. 19:00 – 20:00 í Norðlingaholtsskóla. Fyrsta æfing er miðvikudaginn 14.nóv.

Þjálfarar á námskeiðinu eru Kjartan Stefánsson 5.fl kk, Kristján Gylfi Guðmundsson 5.fl kk og Hörður Guðjónsson 5.fl kvk.

Námskeiðið kostar 10.000 kr.

Skráning fyrir 5.flokk karla fer fram með því að senda tölvupóst með nafni iðkanda á fylkir55@gmail.com

Greiðslufyrirkomulag verður tilkynnt eftir fyrsta fund þjálfara og foreldraráðs

No comments:

Post a Comment