Sælir drengir
Nú tökum við okkur allir gott jólafrí og mætum galvaskir til leiks á nýju ári. Fyrsta
æfing er mánudaginn 7. janúar í Egilshöll 16:20-17:10 (Allir).
Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á nýju fótboltaári.
Passið þið bara að borða ekki yfir ykkur um hátíðarnar og reynið að hreyfa ykkur
eitthvað, það hafa allir gott og gaman að því :) Nýtt ár er góður tímapunktur til að
setja sér skammtíma og langtíma markmið til að eflast sem fótboltamaður og manneskja.
Það er góð leið að skrifa markmiðin niður og hengja þau upp á ísskápinn eða inn í
herbergi.
Síðasta æfingin var skemmtileg rigningaræfing þar sem sett var upp í mót og allir þátttakendur fengu verðlaun (kók og prins). Úrslit mótsins má sjá í töflunni hér að neðan.
Kveðja
Kjartan og Krissi

Gleðileg jól, takk fyrir síðustu mánuði. Kv. Aron Örn
ReplyDelete