Sælir strákar
Nú er Jólamótinu lokið og okkar liðum gekk upp og niður í dag ef við miðum við úrslit leikja. Ég get alveg sagt ykkur það að við þjálfararnir erum mun meira að velta fyrir okkur hvernig fótbolta við vorum að reyna spila heldur en úrslitum leikja.
Þetta mót er einungis skemmtimót og í raun erfitt að meta leikmenn eftir það, ekki síst þar sem fjórir leikir voru spilaðir og leiktíminn var 1x12 mín (nema hjá C2 og D2 þar sem spilaðir voru tveir leikir 2x12 mín). Þetta kemur út á það sama þ.e. að hvert lið spilaði í 48 mín samtals í dag.
Mótin sem við tökum þátt í eftir áramót eru með allt öðru sniði; Reykjavíkurmót sem hefst líklega í byrjun febrúar og svo Íslandsmótið sem er allt sumarið. Aðeins er spilaður einn leikur í senn og leiktími er 2x20 mínútur (40 mínútur) á tvöfalt stærri velli þ.e.a.s. 1/2 af stórum velli í stað 1/4 eins og var spilað á í dag.
Það er talsvert erfiðara að reyna að spila og halda boltanum innan liðsins á svona þröngum velli. Mat okkar þjálfarana er að Fylkir hafi spilað besta fótboltann í dag, þar sem flest öll hin liðin voru meira í "kick and run" bolta sem við ÆTLUM EKKI að spila. Nokkrir einstaka leikir töpuðust eða glutruðust niður í jafntefli útaf óheppni og/eða klaufagangi hjá okkur fyrir framan markið og í varnarvinnunni. Okkar skilaboð eru skýr: Ekki vera hræddir við að mistakast, því ef að maður má ekki gera mistök í 5.flokki til þess að læra af þeim, hvenær þá? Eftir því sem þið eldist eykst áhersla á keppni og að fækka mistökum til að hámarka árangur.
Gott dæmi: Markvörður ver þrjú dauðafæri í leik (og bjargar þar með þremur mörkum) og reynir alltaf að skila boltanum stutt frá sér á næsta mann ef kostur er. Hann gerir ein mistök sem kosta mark hjá andstæðingnum og leikurinn jafnvel tapast á því. Er þá hægt að segja að markvörðurinn hafi átt slakan
leik? Nei því þegar á heildina er litið átti hann góðan leik.
Mér fannst vanta aðeins meiri gleði í okkar leik. því það að spila fótbolta og keppa í móti á að vera það skemmtilegasta sem þið gerið. Stundum vorum við of fljótir að gefast upp, svekkja okkur og byrja að kenna næsta manni um það sem fór úrskeiðis. Það er í mannlegu eðli og mjög eðlilegt að fara inn í hvern einasta fótboltaleik með það að markmiði að vinna hann. Það má hins vegar ekki verða þannig að þegar að það gengur ekki allt upp að þá missum við leikgleðina og hættum að spila okkar leik.
Ég er sannfærður um að það að breytingin að hafa allar æfingar í 90 mínútur og að bæta inn séræfingu innanhúss (fyrir þá sem vilja og/eða geta) á eftir að skila okkur betri fótboltamönnum á næsta ári 2013. Það sást pínulítið í dag að þeir sem hafa ekki verið alveg nógu duglegir að æfa áttu stundum í smá vandræðum með grunnatriði leiksins (sendingar og móttökur), því hvet ég ykkur alla til að æfa vel og leggja hart að ykkur, bæði á æfingum og utan þeirra. Það mun skila sér í framförum bæði hjá einstaklingum og okkur sem liði.
Áfram Fylkir!
kveðja
Krissi þjálfari
Frábær póstur Krissi og ég er alveg sammála þér. Fylkir spilaði flottan fótbolta í dag, af þeim leikjum sem ég sá. Það þarf mikinn kjark að spila eins og Fylkir gerði í dag. Stutt spil og sífellt að reyna stuttar einfaldar sendingar í stað langra og marklausra spyrna. Áfram Fylkir!
ReplyDeleteFlottur pistill á jákvæðum og uppbyggjandi nótum sem hvetur strákana örugglega til frekari dáða!
ReplyDeleteTil fyrirmyndar, Krissi (og Kjartan)! Gaman og ánægjulegt að sjá ykkar áherslur í æfingum, þjálfun og í leiknum í heild. Er ekki frá því að strákarnir geti nýtt sér þessa nálgun/aðferðafræði á öðrum vettvangi í framtíðinni. Það liggur í hlutarins eðli að það er ekki hægt að dæma langtíma markmið á einum leik. Hvet ykkur til góðra verka, gangi ykkur vel!
ReplyDelete