Tuesday, December 11, 2012

Keiluferð - Úrslitaþjónustan og rapport



Sæl öll
Það voru svangir fótboltadrengir sem komu beint af æfingu í Egilshöllinni yfir í Keiluhöllina á mánudag. Áður en farið var í keilu var byrjuðu strákarnir á því að næra sig á samlokum og drykk. Það er óhætt að segja allir sem einn hafi staðið sig með stakri prýði enda voru þeir augljóslega orðnir svangir og þyrstir eftir æfingu dagsins. 
Starfsfólk Keiluhallarinnar hafði einnig orð á því hversu prúðir og kurteisir strákarnir voru. Höldum því endilega áfram.
Í keilunni dreifðust keppendur á átta brautir þar sem Krissi og Kjartan tóku sér stöðu meðal jafningja. Keppt var innbyrðis á milli brauta og til að gera langa sögu stutta þá sýndu þátttakendur gríðarleg tilþrif en aðeins eitt lið stóð uppi sem sigurvegari í þetta sinn.
Lið Ívars Andra, Jakobs Arnar, Jóhanns Bergs, Jóhanns Arnar, Jóns Aðalsteins og Kristófers Leós var hlutskarpast með alls 601 stig í 10 umferðum eða alls 100,1 stig að meðaltali á hvern liðsmann. Glæsilegt og til hamingju með þetta strákar. Önnur lið voru ekki langt undan.
Eftir þessa frammistöðu er nauðsynlegt að verðlauna sigurvegarana og er það gert með því að allir aðrir þurfa að heilsa sigurvegurunum á næstu æfingu með handabandi og segja;
Sæll,meistari! Það er naumast að þú ert góður í keilu“.
Vonandi skemmtu allir sér vel og áhugi sé á því að halda fleiri hópeflisferðir í vetur.

Kveðja, Foreldraráð

1 comment:

  1. Frábært framtak. Takk þjálfarar og foreldraráð sem að þessu stóðu.

    ReplyDelete