Wednesday, December 19, 2012

Síðasta æfing - jólamót 5.flokks Fylkis

Sælir strákar
Síðasta æfing fyrir jólafrí er fimmtudaginn 20. desember. Æfingin verður frá 16:45-
18:15 á Fylkisvelli og allir eiga að mæta, þannig að hópaskiptingin á ekki við.
Við ætlum að setja upp í mót og skipta í 6 jöfn lið. Hvert lið finnur sér nafn á
félagsliði (t.d. Man Utd, Barcelona eða Liverpool. Úrslit hvers leiks verða skráð niður og út frá því raða liðin sér í sæti 1-6.
Verðlaun í boði!!! Allir að mæta og enda þetta með stæl fyrir jólafrí

Fyrsta æfing eftir jólafrí verður mánudaginn 7. janúar í Egilshöll.
Jólakveðja
Kjartan og Krissi

1 comment: