Monday, December 16, 2013

Jólafrí

Sælir drengir

Núna erum við komnir í jólafrí og er næsta æfing ekki fyrr en á næsta ári eða 7. janúar 2014. Viljum líka segja að við þjálfarar voru mjög ánægðir með ykkur í gær á móti FH og stóðu öll liðin sig mjög vel. Njótið þess að vera í fríi strákar og muna svo að horfa á Liverpool eins mikið og hægt er í fríinu.
Gleðilega hátíð
Óli og Kjartan

Sunday, December 15, 2013

Tengillinn á liðin

Hér fyrir neðan sjáið þið tengilinn á liðsuppstillingu gegn FH á morgun, 16.desember

https://drive.google.com/file/d/0B0FRdDVLQtTJNHJ2NkVubDJtRms/edit?usp=sharing

Athugið að Óli Stígs á afmæli á morgun og því væri æskilegt að foreldrar bökuðu afmælisköku í tilefni dagsins, helst bleika að lit. 

Bestu kveðjur 
Þjálfarar

Friday, December 13, 2013

Fylkisbíó

Kæra Fylkisfólk
Þá er komið Fylkis jólabíóinu í ár. Það er sannkölluð jólaperla sem sýnd verður en það er Disney myndin Frosin sem frumsýnd er nú um helgina. Sýningin verður sunnudaginn 15. desember klukkan 12:30 í Sambíóum Egilshöll og er miðaverð aðeins 1.000 kr.
Bókunarfyrirkomulag á sýninguna verður í gegnum Nora (sama og þið notið við skráningar á námskeið í knattspyrnunni, þ.e. fara í námskeið í boði og velja þar það sem við á.). Hægt er að velja um að kaupa 1,2,3 eða fjóra miða. Ef fjölskylda ætlar að kaupa 5 miða þarf að kaupa samsetningu af 1+4 eða 2+3. Ekki er hægt að kaupa 2x1 miða á sama einstakling en hann getur þó keypt miða í öllum áður nefndum flokkum. Gott er að prenta út kvittun fyrir kaupunum til að auðvelda afhendingu miða.
Barna- og unglingaráð verður síðan á staðnum og gengur frá miðum út frá skráningunni. Nauðsynlegt er að vera búin að skrá sig áður þannig að allt gangi vel fyrir sig og mæta tímanlega þannig að allir komist inn í salinn á réttum tíma.
Semsagt:
Sambíóin Egilshöll
Sunnudaginn 15.desember kl. 12.30
Miðaverð 1.000 kr
Vonumst til að sjá flest ykkar á sunnudaginn!
Með jólakveðju,
Barna- og unglingaráð

Tuesday, December 10, 2013

Tækninámskeiðið

Sælir
Á morgun miðvikudag verður mót í skallatennis og mikið stuð. Það var dregið í lið rétt áðan og verða þau tilkynnt á morgun, þurfum kannski að breyta þeim eitthvað ef það mæta ekki allir.
Kv.
Óli og Kjartan

Wednesday, December 4, 2013

Æfing fellur niður í dag, fimmtudaginn 5. des.

Þar sem miklar frosthörkur ganga nú yfir landið, fylgjum við fyrirmælum BUR(barna og unglingaráð) og blásum af æfinguna í dag á Fylkisvelli. Stefna BUR er sú að æfingum yngri flokka félagsins sé ekki haldið úti ef frost fer í -5 gráður eða meira. Við vitum að við mætum skilningi foreldra á þessu.

Bestu kveðjur
Kjartan og Óli Stígs

Tuesday, December 3, 2013

Afhending á vörum

Vörurnar verða afhendar á morgun, fimmtudag frá kl. 15:45 - 16:30 í Fylkishöllinni.

Vinsamlegast munið að setja nafn drengsins í skýringu í heimabankanum og prenta út kvittun og koma með þegar vörurnar eru sóttar.

Reikningsnúmer: nr. 0535-05-400350
Kennitala: 571083-0199

Tuesday, November 26, 2013

Æfing 2. des. fellur niður


Sæl

 Æfingin næsta mánudag (2. des) í Egilshöll fellur niður því að stelpurnar í 5. fl. verða með æfingaleik í tímanum. Við stefnum svo að vera með æfingaleik í Egilshöll 16. desember

kv.

Óli og Kjartan

Sunday, November 24, 2013

Facebook

Sæl
Hérna er linkur inn á nýja Facebook síðu flokksins https://www.facebook.com/fylkir5flokkurkarla og hann er einnig hérna til hliðar.
kv.
 Óli og Kjartan

Friday, November 22, 2013

Leikur við Þrótt á morgun

Sæl

Hérna er liðskipan fyrir morgundaginn og hvenær liðin eiga að mæta: A og C lið mæta 10:10 en B og D mæta 11:00. Liðin eru svona:

A

Axel Máni                       
Arnar Máni
Óskar
Hrannar Ingi
Daníel Smári
Jón Orri
Kári
Markús
Jón Hákon (m)
B

Máni (m)
Aron Ingi
Haukur Ingi
Ægir Óli
Magnús Ari
Dagbjartur
Jóhann Bergur
Eyjólfur Andri
Sebastian Óli

C

Aron Markús
Benedikt Birgir
Magnús Orri (m)
Ólafur Rúnar
Nökkvi
Ármann
Helgi Valur (m)
Gabríel Máni
Dagur Edvard

D


Einar Örn
Grímur Arnar
Stefán Karl
Felix-
Ríkharður (m)
Kári Fannar
Adriano-
Dagur Breki
Kristófer Leó

Muna svo að mæta á réttum tíma
kv.

Óli og Kjartan

Tuesday, November 19, 2013

Fjáröflun

Sælir kæru foreldrar og forráðamenn

Nú er komið að fyrstu fjáröflun drengjanna okkar fyrir verkefni komandi leiktíðar. Við hvetjum ykkur til að vera dugleg að taka þátt í fjáröflunum vetrarins því kostnaður á síðasta ári vegna N1 móts, BUR flík og tengdum atburðum var nálægt 40 þúsund krónum á dreng. Við gerum ráð fyrir annari fjáröflun með vorinu.

Meðfylgjandi tenglar eru á skjöl sem þið getið nýtt ykkur fyrir söluna að þessu sinni.
  • Söluskjal - smelltu hér
  • Útreiknaður söluhagnaður - smelltu hér

Dagsetningar fyrir þessa fjáröflun er sem hér segir:
  • Skila þarf pöntun til foreldraráðs í síðasta lagi fimmtudaginn 28.11.2013
  • Vörur þarf að sækja í Fylkishöll fimmtudaginn 05.12.2013 eftir æfingu hjá strákunum

Kveðja,

Foreldraráð 5.fl.ka

Æfingaleikur

Sæl
Það er búið að bjóða okkur að taka æfingaleik næsta laugardag við Þrótt í Laugardalnum. Leiktími er frá kl. 10:30 og höfum við völlinn til kl. 12. Þannig að við verðum að sjá hvernig við náum að setja upp leikskipulag á svo skömmum tíma gæti verið að einhver lið þurfi að spila á 1/4 velli. Endilega skráið ykkur í leikinn í COMMENTA kerfinu.
Kv.
Óli og Kjartan

Tuesday, November 12, 2013

Foreldrafundur


Sæl öll

Ákveðið hefur verið að boða til foreldrafundar á mánudaginn 18. nóvember klukkan 20-21 í tengibyggingu Fylkishallar. Það sem þarf að ræða er:

·        Hópaskipting

Við hvetjum alla til að mæta og segja sína skoðun á þessu.

 

kv.

Óli og Kjartan

Monday, November 11, 2013

Skipting í hópa


Kæru foreldrar

 Í kjölfar viðbragða sem við þjálfarar höfum fengið þá höfum við ákveðið að hætta við að skipta þeim upp í hópa 1 og 2. Þannig að fram að áramótum þá verður skiptingin eftir aldri eða yngra og eldra ár.  Við ræddum þetta á foreldrafundi fyrr í vetur um skipta þeim í hópa og var tekið vel í það en við höfum upplifað annað núna um helgina. Þetta er kannski umræða sem við verðum greinilega að taka aftur fyrir á foreldrafundi og þá viljum við fá ykkar skoðanir á þessu og vonandi treystið þið okkur þá um að taka ákvörðun í þessu máli ef sú leið verður farin. kv. Óli og Kjartan

Thursday, November 7, 2013

Ný hópaskipting

Sæl og blessuð

Ný hópaskipting tekur gildi frá og með þriðjudeginum 12.nóv
Farið var eftir iðkendalista og einungis þeir sem eru skráðir iðkendur í 5.flokk kk voru settir í hóp 1 eða hóp 2.

Ef ykkar nafn er ekki á þessum listum þá mætið þið með hóp 1 og þurfið að skrá viðkomandi hið fyrsta á heiðmasíðu Fylkis (fylkir.com) eða snúa sér til starfsmanna  og skrá viðkomandi í 5.flokk kk.

Skoðið breytta æfingatíma út frá skiptingu í nýja hópa.


Hópur 1

Dagur Edvard
Einar Örn Reikdal
Fannar Máni
Felix Jónsson
Garðar Ingi
Gunnar Stefán
Helgi Valur
Kári Fannar
Kári Marcher
Magnús Orri
Marvin Þór
Nökkvi Svan
Ólafur Rúnar
Sebastian Óli
Stefán Atli
Stefán Karl
Sævar Þór


Hópur 2

Aron Ingi
Aron Markús
Aron Örn
Axel Máni
Baldur Einarsson
Benedikt Birgir
Bjarki Sigfússon
Dagbjartur Alex
Daníel Aron
Daníel Smári
Einar Eyjólfs
Emil Ásgeir
Eyjólfur Andri
Haraldur Helgi
Haukur Ingi
Hrannar Ingi
Jóhann Bergur
Jón Hákon
Jón Orri
Kári Sigfússon
Magnús Ari
Máni Binder
Mikael Guðni
Orri Hrafn
Óskar Borgþórsson
Ægir Óli
Ævar Daði

Bestu kveðjur
Kjartan og Óli Stígs

Monday, November 4, 2013

Legghlífar

Við þjálfarar viljum minna á að mæta með legghlífar á allar æfingar. Strákarnir hafa verið að fá spörk í legginn og þá er það ansi vont ef maður er ekki með hlífar. Það er krafa að spila með legghlífar og þá er best að æfa með legghlífar. kv. Þjálfarar

Saturday, November 2, 2013

Greiðslur vegna tækniæfinga í Norðlingaskóla

Nú er kominn tími á að ganga frá greiðslum vegna tækniæfinganna í Norðlingaskóla sem verða í vetur.

Verð: 10.000 kr.

Reikningsnúmer: 0535-05-400350

Kennitala: 571083-0199

Vinsamlegast gangið frá greiðslu fyrir 10. nóvember og munið að setja nafn stráksins í skýringu og senda kvittun á david@nordik.is í gegnum heimabankann.

Kv. Foreldraráð.

Thursday, October 31, 2013

Sælir markmenn

Hérna er slóð inn á FB fyrir markmannsþjálfun https://www.facebook.com/#!/groups/fylkismarkmenn/ endilega tengið ykkur við hópinn.
kv.
Þjálfarar

Wednesday, October 30, 2013

Tækninámskeið í kvöld


Við viljum minna á tækninámskeiðið sem verður í kvöld kl. 19:00.
kv.
Þjálfarar

Wednesday, October 23, 2013

Tækninámskeið í Norðlingaskóla

Sæl öll

Eins og fram kom á foreldrafundinum þá munum við þjálfarar bjóða upp á tækninámskeið í vetur á miðvikudögum kl. 19-20 í Norðlingaskóla. Lágmarksþátttaka eru 15 strákar og er verðið á þessu kr. 10.000 og verða þetta cirka 20 skipti, þeir sem hafa áhuga verða að skrá sig á olistigs@gmail.com. Hugmyndin er að byrja með þetta 30. október og þarf að vera búið að ganga frá eða semja um greiðslu eigi síðar en 5. nóvember  

Aðeins þeir drengir sem búið er að skrá sem iðkanda inn á heimasíðu Fylkis  https://fylkir.felog.is/ geta tekið þátt.
kv.

Þjálfarar

Tuesday, October 15, 2013

Nýtt foreldraráð

Kæru foreldrar við viljum þakka fyrir fundinn og það var gaman að sjá ykkur. Núna er búið að stofna foreldraráð þannig að starfið er formlega hafið. Það er búið að uppfæra linkinn hér hægra megin með foreldraráðið og ef það eru fleiri sem hafa áhuga en sáu sér ekki fært að mæta í gær endilega hafa samband við foreldraráðið. Eftirfarandi aðilar buðu sig fram:

·        Þorvaldur Már
·        Þorkell Þorkelsson, netfang: keli@frjo.is, S: 823-9003
·        Gauti Guðmundsson, netfang: gauti@betware.com,
·        Kjartan Kjartansson, netfang: khk@isb.is, S: 844-4379
·        Bjarni Brynjólfsson, netfang: bjarnibryn@gmail.com, S: 869-9092

kv.
Þjálfarar

Thursday, October 10, 2013

Skálafell yngra ár

Föstudaginn 11.október fer seinni hópurinn yngra árið (f.2002) í Skálafell. Við ítrekum að 13.000 kr skulu greiddar (í seðlum við komu í Skálafell (ekki lagt inn á reikning). Tvö sjónvörp verða á svæðinu (eitt uppi og hitt niðri) og væri flott ef einhverjir tveir geta tekið með sér PS3 (mikilvægt að einhverjir tveir geti tekið þetta að sér þannig að það verði tvær tölvur á staðnum, svo fleiri geta spilað samtímis því 27 strákar eru skráðir í ferðina). Einnig að taka með FIFA 14 leikinn svo við getum spilað FIFA og búið til mót. Endilega taka með sér PS3 fjarstýringar svo hægt sé að spila 2vs2. Upplýsingar um dagskrá og hvað þarf að taka með sér er hægt að finna hér á blogginu ef þið skrollið aðeins niður og á facebook. Við viljum leggja sérstaka áherslu á að taka með sér inniskó og hlý föt.

sjáumst hressir
kveðja
Kjartan og Krissi


Foreldrafundur

Foreldrafundur verður haldinn næstkomandi mánudag þann 14. október 2013 klukkan 20:00 í tengibyggingunni í Fylkishöll. Kær kveðja þjáfarar.

Sunday, October 6, 2013

Egilshöll á morgun, mánudag

Sæl og blessuð

Við þjálfararnir viljum minna bæði foreldra og drengi á æfinguna okkar sem hefst á morgun í Egilshöll með upphitun klukkan 17:15. Við hlökkum til að sjá sem flesta og vonumst til að þessi tilkynning berist til allra. 

Minnum einnig á það að æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum hefjast klukkan 15:00 hjá yngri og hjá þeim eldri klukkan 16:00.


Unnið er að því að setja upp bloggið að okkar skapi og vonumst við til þess að því verði lokið um miðja næstu viku. 

Með fyrirfram þökk

Kjartan og Óli

Thursday, October 3, 2013

Smá breyting á skálafellsferð

ATH! Smá breyting á Skálafellsferð. Vegna anna hjá okkur þjálfurum er mæting kl. 19:00 á morgun (föstudag) í Skálafell en ekki kl. 18:00 eins og áður var auglýst!

Wednesday, September 25, 2013

Skálafell - Lokaslútt 5.flokks

Þjálfarar 5.flokks Kjartan og Krissi bjóða upp á það að fara með strákana í Skálafell sem lokaslútt líkt og þeir hafa gert síðustu ár. Þetta er frábært framtak og hin besta skemmtun fyrir strákana. Einhverjir hafa sent staðfestingu á því að þeirra drengur mæti en við þurfum meiri skráningu ef unnt á að vera að fara í ferðina. Hér að neðan eru drög að dagskrá ferðarinnar og einnig nöfn þeirra sem hafa skráð sig. Aðrir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér á bloggið eða á facebook síðu flokksins hafi þeir áhuga (skráning frá foreldrum).

"Helgarnar 4-6 október (drengir fæddir 2001) og 11-13 október (drengir fæddir 2002) ætlum við að fara í Skálafell og hafa gaman. Þetta er í boði fyrir alla drengi sem eru fæddir 2001 og 2002 sem léku með okkur í Reykjavíkurmóti og Íslandsmóti. Foreldrar og forráðamenn þurfa að keyra ykkur upp í Skálafell og sækja ykkur. Dagskráin hefst á föstudeginum kl. 18:00 og henni líkur á sunnudeginum kl. 13:00.

Vegurinn er góður upp í Skálafell að bílastæði og tekur c.a. 20-30 mínútur. Það er hægt að keyra að skálanum á  jeppum en sá vegur er ófær fólksbílum og mælum við með því að þið hafið frekar samband við þjálfara (Kjartan s: 861-9192) ef þið komið á fólksbílum og  þá er hægt að ná í strákana niður á bílaplan.

Kostnaður við ferðinar er 13.000 kr. Drengirnir fá kvöldmat á föstudeginum. Morgunmat, hádegismat og kvöldmat á laugardeginum og á sunnudeginum fá þeir morgunmat og hádegismat. Strákarnir mega taka með sér nammi, snakk, gos, tölvu, leiki, myndavél, bækur og síma og eins ef þið eigið einhver skemmtileg spil þá endilega takið það með. Gott væri ef strákarnir gætu tekið með sér millimál t.d. kex, skyr, kleinur o.fl.

Skráið þátttöku ykkar hér á bloggið eða á facebook síðu flokksins og látið vita af ykkur fyrir föstudag 27.september. 13.000 kr skulu greiddar (í seðlum) við komu í Skálafell.

Það sem strákarnir verða að taka með sér er:
Inniskó (reynslan frá því í fyrra sýndi að þetta er mikilvægt)
Tannbursti og tannkrem
Koddi
Sæng/Svefnpoki
Föt til skiptanna
Föt fyrir útiveru
Góða skó (gönguskó)
(Dýnur eru á staðnum, þannig það þarf ekki að taka þær með)

Svona verður dagskráin í grófum dráttum:

Föstudagur:
18:00 Mæting upp í Skálafell og strákarnir koma sér fyrir
20:00 Kvöldmatur
21:00 Bíókvöld

Laugardagur:
09:00 Morgunmatur
10:00 Teknar upp stuttmyndir (sketstar)/leikir/göngutúr/frjáls tími
13:00 Hádegismatur
14:00 Teknar upp stuttmyndir (sketstar)/leikir/göngutúr/frjáls tími
20:00 Kvöldmatur
22:00 Kvöldvaka (Hæfileikakeppni, fótboltaspurningakeppni o.fl.)

Sunnudagur:
09:00 Morgunmatur
10:00 Frjáls tími
12:00 Hádegismatur
13:00 Foreldrar sækja strákana

Þeir sem eru skráðir: (Uppfært hér á blogginu eftir þegar þær berast):

Yngra ár:
Arnar Máni
Aron Markús
Aron Örn
Axel Máni
Baldur
Einar
Dagbjartur Alex
Dagur Breki
Daníel Aron
Gabríel Máni
Haukur Ingi
Hrannar Ingi
Jóhann Bergur
Jón Hákon
Jón Orri
Kári
Kristófer Leó
Magnús Ari
Markús Máni
Orri Hrafn
Ríkharður Darri
Sebastian Óli
Stefán Atli
Sævar Þór
Ægir Óli
Ævar Daði

Eldra ár:
Arnþór Snær
Daníel Bjartmar
Ingvar Hálfdán
Ísak Miri
Ívar Andri
Hákon Ísar
Jakob Örn
Jóhann Örn
Leó Ernir
Númi Steinn
Stígur Annel
Tindur Örvar
Valdimar Örn

Sunday, September 15, 2013

Tímabili lokið - Tveggja vikna frí

Þá er tímabilinu í 5.flokki karla lokið. Nú tekur við tveggja vikna frí frá æfingum áður en að skiptingin á sér stað. Strákar á eldra ári (fæddir 2001) færast upp í 4.flokk og strákar á yngra ári (fæddir 2002) færast á eldra ár í 5.flokki. Æfingar hefjast að nýju  í vikunni 30.sept - 4. okt. Æfingatöflu komandi vetrar má finna á fylkir.com!

Í fyrra fór lokahóf 5.flokks fram í Skálafelli og er góður möguleiki á að það verði gert aftur ef að áhugi er til staðar, nánar auglýst síðar!

Uppskeruhátíð yngri flokka verður svo haldin í Fylkishöll næsta sunnudag 22.september!

Tvö lið af fimm komust í úrslitakeppni Íslandsmótsins að þessu sinni. B-liðið endaði í öðru sæti eftir tap í úrslitaleik gegn Fjölni. Sannarlega frábær árangur að komast alla leið í úrslitaleikinn! C-liðið endaði í 5.sæti sem er einnig virkilega flottur árangur, hlutirnir féllu ekki alveg fyrir þá á laugardeginum, en strákarnir kláruðu mótið með stæl með stórsigri á Njarðvík. D-liðin bæði voru grátlega nálægt því að komast inn í úrslitakeppni og sýndu góða spilamennsku í sumar, sérstaklega seinni hluta móts.
A-liðið hélt sæti sínu að lokum nokkuð örugglega  í A-deild en við þjálfarar vissum það fyrirfram að baráttan þar gæti orðið ansi hörð. Liðið lenti í mörgum hörkuleikjum og fékk flotta reynslu sem mun nýtast vel í framtíðinni.

Við þjálfarar þökkum ykkur strákar fyrir skemmtilegan vetur og sérlega skemtmilegt og lærdómsríkt sumar, það var virkilega gaman að vinna með ykkur! Einnig viljum við þakka foreldrum fyrir gott og farsælt samstarf og þá ekki síst foreldraráðinu sem stóð sig með stakri prýði í ár.

Fylkiskveðja

Krissi og Kjartan



Thursday, September 12, 2013

Æfing í dag , breyting á tímasetningu hjá C-liði

Æfing í dag kl. 15:00-16:00. Minnum á að leikur Fylkis og FH hefst kl.17:30.

Tímasetningar hjá C-liðinu sem spilar í úrslitakeppninni á laugardag og sunnudag hafa breyst frá því sem KSÍ hafði tilkynnt um áður. Leikið verður í Akraneshöllinni

Mæting 09:00 í Akraneshöllina. Jón Hákon, Ævar, Hrannar (c), Danni, Einar, Óskar, Dagbjartur, Ægir, Maggi og Aron Örn.

Leikjaplan:

lau. 14. sep.  09:50 Fylkir - ÍA Akraneshöllin
lau. 14. sep.  12:20 Fylkir - Breiðablik 2 Akraneshöllin
sun. 15. sep.  10:50 Njarðvík - Fylkir Akraneshöllinn

B-liðið spilar svo undanúrslitaleik næsta laugardag kl. 17:50 gegn Víkingi R. á Fjölnisvelli (gervigras fyrir aftan Egilshöll).

Mæting kl. 17:00. Baldur, Jón Orri, Ingvar, Arnþór (c), Axel, Markús, Arnar Máni, Kári, Númi og Ívar Andri.

Wednesday, September 11, 2013

Æfingin á morgun færist til kl 15:00

Sæl

Æfingin á morgun (fimmtudag) færist til kl. 15:00 - 16:00 í stað þess að hefjast kl.16:30. Er þetta vegna leiks Fylkis og FH í meistaraflokki karla sem hefst kl. 17:30.

kveðja
K &K

Sunday, September 8, 2013

Æfingar í næstu viku og úrslitakeppnin

Æfingar í næstu viku, allar á Fylkisvelli!

mánudagur: Engin æfing
þriðjudagur: Æfing 16:30-17:30
miðvikudagur: Æfing 16:30-17:30
fimmtudagur: Æfing 16:30-17:30
föstudagur Aukaæfing (B og C-lið) 16:30-17:30

Óskum B-liðsstrákum til hamingju með að vera komnir í undanúrslit í úrslitakeppni Íslandsmótsins, þeir unnu alla leikina og fara örugglega áfram.

B-liðið spilar undanúrslitaleik næsta laugardag kl. 17:50 gegn Víkingi R. á Fjölnisvelli (gervigras fyrir aftan Egilshöllina. Mæting kl. 17:00

Baldur, Ingvar, Jón Orri, Arnþór (c) Axel, Markús, Arnar Máni, Númi, Kári og Ívar Andri.

C-liðið spilar í úrslitakeppninni einnig næsta laugardag og sunnudag. Leikið verður í Akraneshöllinni. Mæting 12:00 í Akraneshöllina.

Jón Hákon, Ævar, Hrannar (c), Danni, Einar, Óskar, Dagbjartur, Ægir, Maggi og Aron Örn.

Leikjaplan:


lau. 14. sep. 1312:50Fylkir - ÍAAkraneshöllin






lau. 14. sep. 1316:50Fylkir - Breiðablik 2Akraneshöllin






sun. 15. sep. 1310:50Njarðvík - FylkirAkraneshöllinn .




Thursday, September 5, 2013

Monday, September 2, 2013

Úrslitakeppnin hjá B og C liði

Úrslitakeppni 5.flokks fer fram næstu tvær helgar hjá B og C liði. B-liðið spilar næstu helgi 7. og 8. september og C-liðið helgina þar á eftir 14. og 15. september.

B-lið liðsskipan. Mæting kl. 10:00 á Fjölnisvöll (fyrir aftan Egilshöll)

Baldur (m), Ingvar, Ívar Andri, Arnar Máni, Markús, Axel, Arnþór (c), Númi, Jón Orri, Kári.

B-lið leikjaplan:


lau. 07. sep. 1310:50Fylkir - NjarðvíkFjölnisvöllur - Gervigras






lau. 07. sep. 1314:50Fylkir - ÞórFjölnisvöllur - Gervigras










sun. 08. sep. 1310:50Afturelding - FylkirFjölnisvöllur - Gervigras

C-lið liðsskipan. Mæting kl. 09:10. Leikvöllur hefur ekki verið ákveðinn!

Jón Hákon (m), Hrannar (c), Ævar, Danni (6.fl), Aron Örn, Einar, Dagbjartur, Óskar (6.fl), Ægir, Maggi

C-lið leikjaplan:



lau. 14. sep. 1310:00Fylkir - ÍALeikv. óákveðinn








lau. 14. sep. 1314:00Fylkir - Breiðablik 2Leikv. óákveðinn







sun. 15. sep. 1310:00Njarðvík - FylkirLeikv. óákveðinn









Sunday, September 1, 2013

Æfingar í vikunni

Mánudagur kl. 16:30 - 17:30
Miðvikudagur kl. 16:30 - 17:30
Fimmtudagur  kl. 16:30 - 17:30

Wednesday, August 28, 2013

Úrslitakeppni hjá B-liði frestast

Sælir drengir

Þessi frétt var að detta inn á ksi.is: "Mótanefnd KSÍ ákvað á fundi sínum fyrr í dag að fresta úrslitakeppnum 5.flokks karla og kvenna sem vera áttu dagana 31. ágúst og 1.september um eina viku. Þessi ákvörðun er tekin vegna óhagstæðrar veðurspár. Ný niðurröðun verður birt innan skamms".

Svo þetta liggi alveg skýrt fyrir þá mun B-liðið semsagt ekki leika í úrslitakeppninni næstu helgi og munu í staðinn leika í úrslitakeppninni dagana 7. og 8. september.

C-liðið átti að leika sína leiki í úrslitakeppninni sömu daga en við höfum ekki upplýsingar um það hvort C-liðið haldi sínum leikdögum eða hvort þeir færist einnig um viku s.s. 14-15. september . Við þjálfarar munum reyna að komast til botns í því eins fljótt og auðið er og greina frá því hér.

Í ljósi þessa munum við hinkra með að tilkynna liðsskipan B og C-liðs fyrir úrslitakeppnina en ef foreldrar drengja sem hafa leikið með þessum liðum hafa áhyggjur að þeir gætu forfallast þessa helgi þá er hægt að hafa samband við okkur þjálfara í síma eða með tölvupósti!

Einnig er vert að taka það fram að D2 liðið kemst því miður ekki í úrslitakeppnina en við enduðum þar í 2. sæti stigi á eftir Þrótti, en aðeins eitt lið fer áfram úr riðlinum ;(

Minnum á æfingu á morgun (fimmtudag) og föstudag kl. 16:30-17:45!

kveðja
Krissi og Kjartan



Monday, August 26, 2013

Æfingar í vikunni

Æfingar í vikunni ATH! nýjir æfingatímar. Æfing i dag, látið orðið berast!

Mánudagur: 16:30-17:45 (Allir)

Fimmtudagur: 16:30-17:45 (Allir)

Föstudagur: 16:30-17:45 (Allir)

kveðja
þjálfarar

Wednesday, August 21, 2013

Leikir gegn KR

Leikir gegn KR fimmtudaginn 22. ágúst á KR-velli. Þetta eru síðustu leikir í Íslandsmóti. Síðan er úrslitakeppni síðar fyrir þau lið sem komast áfram!

Því miður eru ekki verkefni fyrir alla strákana á morgun :(

A-lið. Mæting 14:20. Leikur hefst kl.15:00

Danni (m), Ísak, Valdimar, Jóhann, Leó, Orri, Stígur, Arnþór.

B-lið. Mæting 15:10. Leikur hefst kl.15:50

Baldur (m), Ingvar, Ævar, Ívar Andri, Jón Orri, Markús, Arnar Máni, Axel.

C-lið. Mæting 14:20. Leikur hefst kl.15:00

Jón Hákon (m), Dagbjartur, Maggi, Danni (6.fl.), Óskar (6.fl.), Einar, Aron Örn, Kári

D-lið. Mæting 15:10. Leikur hefst kl.15:50

Ríkharður (m), Sebastian Óli, Jóhann Bergur, Haukur, Gabríel Máni, Dagur Edvard, Stefán Atli, Tindur, Ægir




Tuesday, August 20, 2013

Æfing

Æfing miðvikudag (21.8.) 13:00-14:15 (Allir)

Síðustu leikir hjá A, B, C og D á fimmtudaginn gegn KR. Liðsskipan kemur inn á morgun

D2 hefur lokið keppni í Íslandsmótinu

Monday, August 19, 2013

Æfing

Æfing á morgun (þriðjudag, 20.8.) kl. 13:00-14:00 (Allir)

Sunday, August 18, 2013

Leikir gegn Breiðabliki 2

Leikir gegn Breiðabliki 2 á mánudaginn 18. ágúst á Fylkisvelli.

A-lið. Mæting 14:20. Leikur hefst kl.15:00

Danni (m), Ísak, Valdimar, Jóhann, Leó, Orri, Stígur, Arnþór.

B-lið. Mæting 15:10. Leikur hefst kl.15:50

Baldur (m), Ingvar, Númi, Ívar Andri, Jón Orri, Markús Arnar Máni, Axel, Hákon.

C-lið. Mæting 14:20. Leikur hefst kl.15:00

Jón Hákon (m), Dagbjartur, Ægir, Danni (6.fl.), Óskar (6.fl.), Einar, Aron Örn, Ævar, Kári

D-lið. Mæting 15:10. Leikur hefst kl.15:50

Ríkharður (m), Sebastian Óli, Kristófer, Jóhann Bergur, Haukur, Gabríel Máni, Dagur Edvard, Stefán Atli, Tindur, Maggi

D2 lið. Mæting 16:00. Leikur hefst kl. 16:40

Ríkharður (m), Daníel Aron, Aron Markús, Helgi Valur, Dagur Breki, Valgeir, Baldur, Jón Hákon, Bjarki (6.fl).


Thursday, August 15, 2013

Leikir gegn Þrótti R.

Leikir gegn Þrótti R. á  föstudag 13. ágúst á Fylkisvelli.

A-lið. Mæting 15:20. Leikur hefst kl.16:00

Danni (m), Ísak, Valdimar, Jóhann, Leó, Orri, Stígur, Axel.

B-lið. Mæting 16:10. Leikur hefst kl.16:50

Baldur (m), Ingvar, Númi, Ívar Andri, Kári, Arnar Máni, Ævar.

C-lið. Mæting 15:20. Leikur hefst kl.16:00

Jón Hákon (m), Dagbjartur, Ægir, Maggi, Danni (6.fl.), Óskar (6.fl.), Einar, Dagur Edvard, Markús.

D-lið. Mæting 16:10. Leikur hefst kl.16:50

Ríkharður (m), Sebastian Óli, Kristófer, Jóhann Bergur, Haukur, Gabríel Máni, Daníel Aron, Stefán Atli, Aron Markús.

Wednesday, August 14, 2013

Leikir gegn Haukum ATH breyttur leiktími

Leikir gegn Haukum á morgun (fimmtudag) 15. ágúst á Haukavelli Ásvöllum. ATH! breyttur leiktími!

A-lið. Mæting 14:50. Leikur hefst kl.15:30

Danni (m), Ísak, Valdimar, Jóhann, Leó, Orri, Jakob, Stígur, Axel.

B-lið. Mæting 15:40. Leikur hefst kl.16:20

Baldur (m), Ingvar, Númi, Ívar Andri, Kári, Arnar Máni, Hákon

C-lið. Mæting 14:50. Leikur hefst kl.15:30

Jón Hákon (m), Dagbjartur, Maggi, Danni (6.fl.), Óskar (6.fl.), Einar, Dagur Edvard, Markús, Ægir

D-lið. Mæting 15:40. Leikur hefst kl.15:30

Ríkharður (m), Sebastian Óli, Kristófer, Jóhann Bergur, Haukur, Gabríel Máni, Daníel Aron, Stefán Atli, Tindur, Aron Markús.

Monday, August 12, 2013

Leikir gegn Stjörnunni

Leikir gegn Stjörnunni á morgun (þriðjudag) 13. ágúst á Fylkisvelli.

A-lið. Mæting 15:20. Leikur hefst kl.16:00

Danni (m), Ísak, Valdimar, Jóhann, Leó, Orri, Jakob, Stígur, Axel.

B-lið. Mæting 16:10. Leikur hefst kl.16:50

Baldur (m), Ingvar, Númi, Hákon, Ívar Andri, Kári, Arnar Máni, Markús.

C-lið. Mæting 15:20. Leikur hefst kl.16:00

Jón Hákon (m), Dagbjartur, Aron Örn, Ægir, Maggi, Danni (6.fl.), Óskar (6.fl.), Einar, Dagur Edvard.

D-lið. Mæting 16:10. Leikur hefst kl.16:50

Ríkharður (m), Sebastian Óli, Kristófer, Jóhann Bergur, Haukur, Gabríel Máni, Daníel Aron, Stefán Atli, Tindur, Aron Markús.

Sunday, August 11, 2013

Vikan 11-17. ágúst

12. ágúst  Fram        (A-B-C-D1)   Safamýrin

13. ágúst  Stjarnan   (A-B-C-D1)    Fylkisvöllur

14. ágúst  Æfing       13:00-14:30   Allir
                Valur 2    (D2)                Fylkisvöllur

15. ágúst  Haukar     (A-B-C-D)     Haukavöllur

16. ágúst  Þróttur      (A-B-C-D)     Þessi leikur er ekki ákveðinn


Drengir við þjálfarar erum búnir að setja upp liðin gegn Fram, en við þurfum að fá að vita hverjir verða heima þessa vikuna til að geta skipulagt okkur aðeins betur.  Endilega setið inn á síðuna hvort þið getið tekið þátt í þessum leikjum.
Kv.
Þjálfarar

Fram - Fylkir A-B-C-D1

Leikir gegn Fram á morgun (mánudag) á Framvelli Safamýri.

A-lið. Mæting 15:20. Leikur hefst kl.16:00

Danni (m), Ísak, Valdimar, Arnþór, Leó, Orri, Jakob, Stígur, Jói

B-lið. Mæting 16:10. Leikur hefst kl.16:50

Baldur (m), Ingvar, Hákon, Númi, Axel, Ívar Andri, Kári

C-lið. Mæting 15:20. Leikur hefst kl.16:00

Jón Hákon, Dagbjartur, Aron, Markús, Ægir, Maggi, Danni (6.fl.), Óskar (6.fl.)

D-lið. Mæting 16:10. Leikur hefst kl.16:50

Ríkharður (m), Dagur Edvard, Sebastian Óli, Danni, Kristófer, Jóhann Bergur, Haukur, Helgi Valur, Óli (6.fl.), Eyjólfur (6.fl.)

Saturday, August 10, 2013

Boltastrákar

Sælir strákar.
Nú vantar okkur boltastráka fyrir leikinn á sunnudag (11. ágúst) Fylkir - Keflavík á Fylkisvelli og byrjar klukkan 19:15. mæting er hálftíma fyrir leik. Fylkisliðið hefur verið á miklu skriði að undanförnu og unnið þrjá leiki í röð. Nú er mikilvægt að halda áfram á sigurbraut og vinna sigur í mikilvægum leik.
Endilega skráið ykkur hér eða á facebook þannig að við sjáum hvort að við náum ekki nægum fjölda.

Thursday, August 8, 2013

Æfing á morgun

Við ætlum að hafa aukaæfingu á morgun (föstudag) kl. 13:00-14:00

Svo er nóg af leikjum í næstu viku!!

Wednesday, August 7, 2013

Knattspyrnuskóli Fylkis

Opnað hefur fyrir skráningar í knattspyrnuskóla Fylkis fyrir stráka í 5.flokki karla. Við verðum alla næstu viku og á morgun og föstudag. Á föstudag mun ein af hetjum Fylkismanna í kvöld Andrés Már Jóhannesson mæta í heimsókn og eru fleiri leikmenn væntanlegir í næstu viku. Skólinn er frá 9-12 á morgnana og hægt er að greiða fyrir staka daga en ég og Sævar þjálfari 6.flokks karla stýrum skólanum.

kveðja
Krissi þjálfari

Leikir gegn Keflavík á morgun (fimmtudag) á Fylkisvelli.

Leikir gegn Keflavík á morgun (fimmtudag) á Fylkisvelli.

A-lið. Mæting 12:20. Leikur hefst kl.13:00

Danni (m), Ísak, Valdimar, Arnþór, Leó, Orri, Jakob, Stígur

B-lið. Mæting 13:10. Leikur hefst kl.13:50

Baldur (m), Ingvar, Hákon, Númi, Axel, Ívar Andri, Kári

C-lið. Mæting 12:20. Leikur hefst kl.13:00

Jón Hákon, Dagbjartur, Aron, Markús, Ægir, Maggi, Danni (6.fl.), Óskar (6.fl.)

D-lið. Mæting 13:10. Leikur hefst kl.13:50

Ríkharður (m), Dagur Edvard, Sebastian Óli, Kristófer, Jóhann Bergur, Haukur, Helgi Valur, Óli (6.fl.), Eyjólfur (6.fl.)


Tuesday, July 30, 2013

Sumarfrí

Sumarfrí þessa viku og framyfir verslunarmannahelgina

Næsta æfing er þriðjudaginn 6. ágúst kl. 13:00-14:00 (Allir)

Sunday, July 21, 2013

Næsta vika

Næsta vika verður einnig róleg hjá okkur, engir leikir

Mánudagur Engin æfing.

Þriðjudagur Æfing 13:00-14:00

Miðvikudagur Engin æfing

Fimmtudagur Æfing 13:00 - 14:00

Föstudagur Engin æfing

Þeir sem vilja mæta á fleiri æfingar eiga kost á því. Yngra árið (strákar fæddir 2002) geta mætt á 6.flokksæfingar á mánudag 13:00-14:00 og miðvikudag kl. 13:00-14:00. Strákar í 6.flokki munu einnig geta mætt á æfingar hjá okkur. Eldra árið (strákar fæddir 2001) geta mætt hjá 4.flokki á mánudag kl. 15:00-16:30, miðvikudag 15:00-16:30 og á föstudag kl. 10:30-12:00

kv
þjálfarar

Sunday, July 14, 2013

Vikan framundan

Vikan framundan:

mán 15. júlí FRÍ frá æfingu. Gríðarlega mikilvægur leikur hjá meistaraflokki karla gegn ÍA kl. 19:15. Nú reynir á að allir Fylkismenn standi saman. Skyldumæting á leikinn (einhverjir verða boltastrákar) hjá öllum í 5.flokki sem komast á völlinn!

þri 16. júlí Æfing 13:00-14:00 (Allir). Leikur hjá D2 við Hauka á Fylkisvelli kl. 15:00 Einungis þeir leikmenn sem mæta á æfingu fyrr um daginn eiga kost á að verða boðaðir í leikinn! Þar sem margir eru í fríi er þetta gert með þessum hætti og þess vegna er ekki hægt að boða hefðbundið lið, heldur veljum við úr þeim sem eru klárir!

mið 17. júlí FRÍ

fim 18. júlí Æfing 13:00-14:00 (Allir)

fös 19. júlí FRÍ 

Sunday, July 7, 2013

N1 mótið yfirferð

Sæl öll og takk fyrir frábæra samveru á N1 mótinu á Akureyri!

Mótið var einstaklega skemmtilegt í alla staði og heppnaðist einkar vel hjá okkur Fylkismönnum. Þeir 42 drengir sem tóku þátt í mótinu fyrir hönd Fylkis stóðu sig allir frábærlega og eiga hrós skilið fyrir sína framkomu innan sem utan vallar.

Einnig vil ég hrósa foreldrahópnum sérstaklega sem var afar virkur og stóð sig mjög vel í að halda utan um strákana. Við lentum sjaldan í því að tvö lið væru að spila á sama tíma og því myndaðist einstaklega góð stemming meðal áhorfenda. Foreldrar voru mjög duglegir að mæta og hvetja öll liðin (ekki bara það lið sem þeirra drengur var í) sem klárlega hafði jákvæð áhrif inn á völlinn.

A-liðið lenti í harðri og erfiðri keppni, en við vissum það fyrir mótið að við gætum átt erfitt uppdráttar hvað úrslit varðar. Flestir leikir töpuðust, margir hverjir naumlega og ekki hefði þurft mikið til að margir þeirra færu öðruvísi. Það vantaði örlítið meira sjálfstraust og þor til að taka af skarið og klára leikina. Liðið náði þó í tvö jafntefli og unnu glæsilegan sigur í síðasta leiknum sem var eini leikurinn þeirra á gervigrasi. Þar gekk mun betur að rúlla boltanum á milli manna, enda margir grasvellirnir á mótinu vart boðlegir til knattspyrnuiðkunar! Strákarnir lögðu alla sína orku í leikina, börðust ávallt til síðasta blóðdropa og fengu góða reynslu út úr mótinu, enda er nauðsynlegt að horfa til margra annarra þátta en úrslita leikja. A-liðið endaði í 17. sæti en getur samt sem áður tekið margt jákvætt úr mótinu.

C-liðið spilaði glimrandi góðan fótbolta lengst af og lögðu flesta andstæðinga sína í riðlakeppninni örugglega að velli. Liðið sýndi flott tilþrif bæði í vörn og sókn og léku andstæðinga sína oft grátt. Mörg gullfalleg mörk litu dagsins ljós í öllum regnbogans litum. Sérstaklega var gaman að sjá nokkur mörk eftir hornspyrnur, sem sýnir mikilvægi þess að æfa þessi atriði vel. Eftir að hafa spilað riðlakeppnina á gervigrasi þurftu strákarnir að spila á stuttum og slæmum grasvelli í 8-liða úrslitum. Þar lentu strákarnir á móti liði sem sigraði að lokum á líkamlegum styrk og háum löngum sendingum fram völlinn. Fótboltalega vorum við með betra lið og ég er ekki í nokkrum vafa að C-liðið hefði farið alla leið í mótinu ef það hefði einungis spilað á gervigrasi. Því miður dró aðeins af liðinu síðasta daginn og niðurstaðan varð 8.sæti eftir tap í síðasta leik í vítaspyrnukeppni.

D-liðið byrjaði mótið virkilega vel og spilaði af mikilli ákefð og krafti. Liðið var komið í virkilega góða stöðu fyrir síðustu leikina í riðlinum eftir mjög góða spilamennsku. Þá féllu strákarnir í þá gryfju að velta of mikið fyrir sér úrslitum og leikjum annarra liða í riðlinum í stað þess að einbeita sér að sjálfum sér og sínum leik. Samt mátti ákaflega litlu muna að liðið kæmist í úrslitakeppnina. Liðið kláraði svo mótið með glæsibrag, hristi af sér vonbrigðin og vann báða leikina á laugardeginum. Strákarnir sýndu flott tilþrif í mótinu og til dæmis fær Baldur mikið hrós frá mér fyrir sinn leik sem markvörður, enda nýbyrjaður að æfa mark aftur! Niðurstaðan var 13.sæti en burtséð frá því í hvaða sæti liðið lenti var heildarframmistaða strákanna mjög góð og lítið vantaði upp á til að ná lengra.

E-liðið átti frábært mót og stóð að lokum uppi sem sigurvegari í keppninni. Leikmenn náðu einstaklega vel saman og samheldnin var mikil. Til að geta unnið svona mót þarf að spila bæði sterkan varnarleik og öflugan sóknarleik. Þó að tiltöllulega fáir hafi séð um markaskorun í liðinu þá var hlutverk þeirra sem komu í veg fyrir mörk andstæðinganna jafn mikilvægt. Strákarnir börðust vel fyrir hvorn annan og héldu jákvæðninni og gleðinni allan tímann. Eftir að hafa sigrað flesta leiki nokkuð þægilega í riðlakeppninni, lentu þeir í þremur hrikalega jöfnum leikjum í úrslitakeppninni. Í öllum þessara leikja vannst sigur eftir vítaspyrnukeppni, þar sem strákarnir sýndu mikið hugrekki og þor í að taka vítin og klára þau, auk þess að hafa mjög góðan markmann sem lokaði búrinu. Til að toppa árangurinn var Aron Örn svo valinn besti sóknarmaður E-liða!

F-liðið átti einnig frábært mót og endaði í öðru sæti eftir tap í úrslitaleik. Liðið byrjaði mótið af miklum krafti og vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum. Leikmenn lögðu sig alla fram og sumir hlupu meira en þeir hafa gert allt Íslandsmótið! Strákarnir lentu svo í jafnari leikjum eftir því sem leið á en samt voru þeir sterkari aðilinn í þeim öllum. Ótrúleg óheppni og klaufaskapur upp við mark andstæðinganna kom í veg fyrir að þeir hafi allir unnist. Í undanúrslitunum sýndi liðið svo gríðarlegan karakter með því að sigra 3-2 eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Í úrslitaleiknum féllu hlutirnir með andstæðingnum og því varð annað sætið niðurstaðan, sem er auðvitað frábær árangur. Að lokum er svo vert að minnast á það að Daníel Aron var valinn besti varnarmaður F-liða. Vil ég reyndar meina að hann hafi ekki verið bestur í þessum flokki, heldur langbestur!

Minningarnar um mótið munu lifa um ókomna tíð hjá drengjunum enda stemmingin og gleðin ósvikin. Drengirnir í E-liðinu munu til að mynda aldrei gleyma því að hafa unnið þrjár vítaspyrnukeppnir í röð sem er auðvitað með hreinum ólíkindum að hafi gerst! Þarna voru örlögin sannarlega að verki!

Ég og Kjartan lögðum mikla áherslu á að sinna liðunum vel og miðla til þeirra inn á völlinn. Við reyndum að vera báðir til staðar á hliðarlínunni eftir fremsta megni til þess að hjálpa til og leggja leikina vel upp. Þetta var vissulega mikil viðvera og það tók á líkamann að standa úti á velli leik eftir leik allan daginn, en sú þreyta gleymdist fljótt í harðri og skemmtilegri keppni þar sem strákarnir lögðu sig 100% fram í alla leiki. Meira er ekki hægt að fara fram á!

Við þjálfararnir göngum afar stoltir frá mótinu og sjáum að framtíðin í félaginu er björt með þessa stráka innanborðs. Nú er mikilvægt að halda áfram vel utan um þá þannig að þeir geti vaxið og dafnað sem knattspyrnumenn en fyrst og fremst sem einstaklingar.

Fylkiskveðja

Kristján Gylfi Guðmundsson

Vikan 8. - 12. júlí

Frí mánudag (8.7.) og þriðjudag (9.7.)
æfingar miðvikudag (10.7.) og fimmtudag (11.7.) kl. 13:00-14:00 (Allir). Keflvíkingar hafa óskað eftir frestun þannig að það verður enginn leikur 12. júlí!

Sunday, June 30, 2013

N1 mótið upplýsingahefti

Með þessum link getið þið nálgast allar upplýsingar um N1 mótið.

kv. Foreldraráð.

Saturday, June 29, 2013

Leikjaplan N1 mótsins

Leikjaplan N1 mót



Eins og þið sjáið eru aðeins tvö lið Fylkir 1 (A) og Fylkir 5 (F) að spila á miðvikudeginum. Því er mælst til þess að leikmenn þessara liða séu mættir um hádegisbilið á Akureyri. Leikmenn annarra liða geta því tekið því rólega á miðvikudeginum en samt sem áður er fínt að þeir verði búnir að koma sér fyrir um miðjan daginn á miðvikudeginum.

Sjáumst hress!

kveðja
Þjálfarar og foreldraráð



Friday, June 28, 2013

Boltastrákar á sunnudaginn 30. júní

Nú vantar okkur boltastráka fyrir næsta leik Fylkis á sunnudaginn. Fylkir tekur á móti KR klukkan 19:15 í Pepsideildinni og okkur vantar 10-12 stráka. Mæta þarf vel klæddir og hálftíma fyrir leik í tengibygginguna í Fylkishöll þar sem skráðir fá peysu eða vesti til að klæða sig í á meðan á leik stendur. Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst þannig að við náum að manna þetta vel. fyrstu 12 strákarnir komast að. kv. foreldraráð.

Thursday, June 27, 2013

Fjármál 5.fl. drengja Fylki

Sæl verið þið öll sömul Verið var að senda á öll netföng forsvarsmanna strákanna upplýsingar um fjármálin m.t.t. þess að nú þarf m.a. að ganga frá málum v/N1 mótsins. Vinsamlegast kíkið á póstinn við fyrsta tækifæri. Kv. Davíð

Wednesday, June 26, 2013

Liðsskipan á N1 móti

Fylkir 1

Daníel Bjartmar
Leó Ernir
Ísak Miri
Valdimar Örn (Fyrirliði)
Stígur Annel
Jakob Örn
Jóhann Örn
Heiðar Ingi
Arnþór Snær

Fylkir 2

Jón Hákon
Hrannar Ingi
Ævar Daði
Einar
Axel Máni
Orri Hrafn (Fyrirliði)
Arnar Máni
Dagbjartur Alex

Fylkir 3

Baldur
Númi Steinn (Fyrirliði)
Tindur Örvar
Ívar Andri
Magnús Ari
Jón Orri
Ingvar Hálfdán
Kári

Fylkir 4

Ólafur Kristófer
Haukur Ingi
Dagur Edvard
Aron Örn (Fyrirliði)
Stefán Atli
Sebastian Óli
Gabríel Máni
Ægir Óli

Fylkir 5

Ríkharður Darri
Jóhann Bergur
Kristófer Leó
Valgeir Viðar
Helgi Valur
Dagur Breki
Máni
Daníel Aron (Fyrirliði)
Sævar Þór

Tuesday, June 25, 2013

Leikir við Breiðablik og Aftureldingu

Leikir gegn Breiðablik á Fylkisvelli miðvikudag 26. júní. 


A-lið. Mæting kl. 14:50. Leikur hefst kl. 15:30

Daniel B. (m), Jói, Valdimar, Heiðar, Leó, Jakob, Orri, Stígur

B-lið. Mæting kl. 15:40. Leikur hefst kl. 16:20

Baldur (m), Axel, Ingvar, Hákon, Númi, Arnar Máni, Arnþór og Ívar Andri

C-lið. Mæting kl. 14:50. Leikur hefst kl. 15:30

Jón Hákon (m), Ævar, Hrannar, Dagbjartur, Kári, Jón Orri, Aron Örn, Einar

D-lið. Mæting 15:40. Leikur hefst kl. 16:20

Óli og Dagur E. skipta með sér markinu (fyrri og seinni hálfleikur)
Ólafur K., S. Óli, Stefán, Haukur, Dagur Edvard, Ægir, Tindur, Gabríel Máni, Jóhann B.

D2 lið. Leikur föstudag 28. júní  gegn Aftureldingu á Tungubakkavelli. Mæting 16:20. Leikur hefst kl. 17:00

Ríkharður (m), Daníel A, Dagur Breki, Valgeir, Baldur, Helgi Valur, Aron Markús, Jón Hákon, Sævar, Kristófer Leó

Mjög mikilvægt að menn mæti á uppgefnum mætingartíma, það truflar undirbúning ef menn eru að mæta of seint!!

kv
Þjálfarar

Monday, June 24, 2013

Framhaldið - Leikir á miðvikudag og föstudag

Sælir strákar og foreldrar

Svona er dagskráin fram að N1 móti og takið nú vel eftir!

þriðjudagur 25. júní. Æfing 13:00-14:00 (Hópur 1) 14:00-15:00 hópur 2.  Liðsskipan fyrir leiki við Breiðablik og Aftureldingu kemur inn á morgun þriðjudag.

 miðvikudagur 26. júní. Æfing 13:00 -14:00 (D2 lið)
 Leikir við Breiðablik (A, B, C og D) A og C spila kl. 15:30 og B og D kl. 16:20 á Fylkisvelli (ATH! breyttur leiktími)

Liðsskipan fyrir N1 mót verður svo kynnt á miðvikudagskvöld!

 fimmtudagur 27. júní æfing 13:00 - 15:00 ( Allir). Undirbúningur fyrir N1 mót (Spil - Leikfræði liðs   hornspyrnur, aukaspyrnur). Markmiðið að samstilla liðin sem verða á N1 móti

 föstudagur 28. júní æfing 13:00-15:00 (Allir). Leikur hjá D2 við Aftureldingu á Tungubakkavelli kl. 17:00. Þeir sem eru að fara að spila við Aftureldingu geta farið aðeins fyrr af æfingunni!

laugardagur 29. júní. Möguleiki á að hafa aukaæfingu, nánar auglýst síðar. Ef að margir eru farnir úr bænum þá verður engin æfing!

mánudagur 1. og þriðjudagur 2. júlí FRÍ!

Reyndar eru settir leikir við Fram hjá (A, B, C og D) mánudaginn 1. júlí en við þjálfarar munum leita allra leiða til að fresta þeim leikjum!

Ef þið hafið einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband! Endilega láta vita líka ef einhver er að fara í frí í þessari viku!

kv
Kjartan og Krissi

Tuesday, June 18, 2013

Leikir við Fjölni 19. júní

Leikir gegn Fjölni á Fjölnisvelli (gervigras fyrir aftan Egilshöll) miðvikudag 19. júní. 

A-lið. Mæting kl. 15:20. Leikur hefst kl. 16:00

Daniel B. (m), Ísak, Valdimar, Jói, Leó, Jakob, Orri, Stígur

B-lið. Mæting kl. 16:10. Leikur hefst kl. 16:50

Baldur (m), Hákon, Númi, Arnar Máni, Ívar Andri, Arnþór, Hrannar og Ævar (spila með B og C)

C-lið. Mæting kl. 15:20. Leikur hefst kl. 16:00

Dagbjartur (m), Ævar, Hrannar, Einar, Óskar (6.fl), Danni (6.fl), Jón Orri, Aron Örn.

D-lið. Mæting 16:10. Leikur hefst kl. 16:50

Máni (6.fl) (m), S. Óli, Stefán, Haukur, Dagur Edvard, Gabríel Máni, Jóhann B., Aron (6.fl), Eyjólfur (6.fl), Óli (6.fl)

D2 lið. Leikur fimmtudag 20. júní gegn FH á Fylkisvelli. Mæting 17:10. Leikur hefst kl. 17:50

Ríkharður (m), Daníel A,  Dagur Breki,  Valgeir, Kristófer, Helgi Valur, Jóhann B., Aron Markús, Sævar, Máni.

Mjög mikilvægt að menn mæti á uppgefnum mætingartíma, það truflar undirbúning ef menn eru að mæta of seint!!

kv
Þjálfarar

Foreldrafundur fyrir N1 mótið miðvikudaginn 19.6.

Foreldrafundur vegna N1 mótsins á Akureyri verður haldinn miðvikudaginn 19.6. kl. 20:30 í Fylkishöllinni.

Hvetjum alla foreldra til að mæta.

Foreldraráð


Monday, June 17, 2013

Vikan

18. júní Æfing . Hópur 1 kl. 13:00-14:15 Hópur 2 14:00 - 15:15

19. júní Leikur hjá A, B, C og D gegn Fjölni á Fjölnisvelli (gervigras við Egilshöll). A og C lið spila kl. 16:00. B og D lið spila kl. 16:50. Þeir sem komast ekki í leikinn og hafa ekki enn tilkynnt um forföll geri það við fyrsta tækifæri.

20. júní Æfing.  Hópur 1 kl. 13:00-14:00 Hópur 2 14:00 - 15:00. Leikur hjá D2 kl.17:50 á móti FH á Fylkisvelli

21. júní Frí


Thursday, June 13, 2013

Fjölnir - Fylkir D2 lið

Leikurinn á móti Fjölni er á gervigrasi við Egilshöll, mæting 15:15

Wednesday, June 12, 2013

D2 - LIÐ
Leikur á morgun fimmtudag 13. júní kl. 15:50 á Fjölnisvelli
Mæting kl. 15:15 stundvíslega
LIÐ
Ríkharður (m), Daníel A,  Dagur Breki,  Valgeir, Kristófer, Helgi Valur, Jóhann B., Baldur, Jón Hákon og Sævar.

Þið verið að staðfesta komu ykkar í leikinn fyrir æfinguna á morgun hér eða á facebook
Kv
Þjálfarar

Monday, June 10, 2013

Markmannsæfingar í sumar

Markmannsæfingar verða á þriðjudögum í sumar fyrir 5.flokk karla frá kl. 12:30-13:30.

Eins og þið vitið erum við ekki með marga markmenn í flokknum sem er vandamál því það þarf að vera markvörður í hverju einasta liði og við verðum með 5 lið bæði í Íslandsmóti og á N1 mótinu. Því er um að gera fyrir þá sem eru að hugsa um að prófa að vera í marki að kíkja á þessar æfingar og athuga hvort að þeir vilji gerast markmenn. Það er líka sjálfsagt að menn geti spilað í marki í einhverjum leikjum og sem útileikmenn í öðrum, eins og við höfum prófað undanfarið.

Markmannsstaðan er ein mikilvægasta staðan á vellinum, ef ekki sú mikilvægasta. Markmaður er aftasti maður í hverju liði og síðasta vonin til að bjarga marki. Hann getur unnið og reyndar tapað leikjum líka fyrir sitt lið. Með þessum orðum erum við þó ekki að setja of mikla pressu á markverðina okkar, því þeir gera mistök eins og allir leikmenn. Mistökin eru til að læra af þeim og menn verða að fá að gera sín mistök, ekki síst þið strákar enda eru þið ennþá í 5.flokki!

Nýráðinn markmannsþjálfari yngri flokka Fylkis er Þorsteinn Magnússon og mun hann stýra þessum æfingum. Þorsteinn hefur mikla reynslu af þjálfun markvarða en hann hefur m.a. unnið fyrir KSÍ með markvörðum yngri landsliða Íslands. Þá var hann m.a. aðalþjálfari meistaraflokks karla hjá Aftureldingu frá 2010-2012 og hefur komið víða við á löngum ferli.

kveðja
þjálfarar


Sunday, June 9, 2013

Æfingar í vikunni

Æfingar í vikunni mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Þeir sem voru í C, D og D2 liði síðast æfa frá13:00-14:00 og þeir sem voru í A og B liði æfa 14:00-15:00. Enginn leikur í vikunni