Thursday, February 28, 2013

Hópefli 5. mars næstkomandi - Manchester United vs. Real Madrid og mátun

Þann 5. mars næstkomandi ætlum við koma saman og horfa á leik í meistaradeildinni, Manchester United vs. Real Madrid sem byrjar kl. 19.45. Við ætlum að mæta klukkan 19:00, fá okkur pizzu og gos og síðan að horfa á leikinn saman. Þeir Krissi og Kjartan verða að sjálfsögðu með.

Kostnaður verður 1.000 kr. sem greiðist á staðnum.

Einnig gerum við ráð fyrir að  mátun á BUR peysum sem afhent verður í vor, fari fram. Það væri því gott ef foreldrar sæju sér fært að koma með strákanna nú eða að sækja þá þannig að foreldrar séu sjálfir ábyrgir fyrir þeim stærðum sem pantaðar eru.

Vonumst til að sjá sem flesta stráka og biðjum um að þið skráið ykkur á bloggið þannig að við vitum hvað þarf að gera ráð fyrir mörgum pizzum.

kv. Þjálfarar og foreldraráð

Monday, February 25, 2013

A-lið Mæting kl. 15:20 á Fylkisvöll Leikur hefst kl. 16:00

Daníel Bjartmar (m), Axel, Valdimar (c), Leó Ernir, Orri, Stígur, Heiðar, Arnþór.

B-lið Mæting kl. 16:10 á Fylkisvöll. Leikur hefst kl. 16:50

Ólafur Kristófer (m), Ingvar, Númi (c), Jón Orri, Hákon, Ívar Andri, Ísak, Ævar.

C-lið Mæting kl. 15:20 á Fylkisvöll Leikur hefst kl. 16:00 

Jón Hákon (m), Hrannar (c), Haukur, Aron Örn, Dagbjartur Alex, Einar, Kári, Baldur.

C2-lið Mæting kl. 16:10 á Fylkisvöll. Leikur hefst kl. 16:50

Ríkharður (m), Sebastian Óli, Gabríel Máni, Daníel Aron, Sævar Þór, Tindur (c), Dagur Edvard, Ægir.

D-lið Mæting kl. 17:00 á Fylkisvöll. Leikur hefst kl. 17:40

Erik, Stefán, Dagur Breki, Helgi Valur, Jóhann Bergur, Valgeir, Kristófer Leó, Alex, Máni K.

Thursday, February 21, 2013

Næsta vika - Leikir á þriðjudag

Sælir strákar

Næsta vika:

Mán. (25.feb) Æfing á Fylkisvelli 16:45-18:15 (Allir)
Þri. (26.feb) Leikir við Þrótt R. á Fylkisvelli
A og C1 lið spila klukkan 16:00
B og C2 lið spila klukkan 16:50
D lið spilar klukkan 17:40
Fim. (28.feb) Æfing skv. hefðbundnu skipulagi hópur 1 kl. 16:15-17:45, hópur 2 17:00-18:30

*Ein breyting á hópaskiptingunni. Aron Örn Þorvarðarson færist úr hópi 1 í hóp 2.

Skráning í leikina fer fram hér á síðunni.
Vinsamlegast tilkynnið komu eða forföll svo við sjáum þetta nákvæmlega

kveðja
K&K

Wednesday, February 20, 2013

Æfing fimmtudag

Æfing í dag fimmtudag 21.2 verður með breyttu sniði þar sem vetrarfrí er skólum er hafið og eitthvað um það að fólk sé að skreppa út úr bænum. Því verða allir saman á æfingu frá kl.16:45-18:15

kveðja
þjálfarar

Thursday, February 14, 2013

Reykjavíkurmót leikir á laugardag

Reykjavíkurmótið hefst á laugardaginn 16. febrúar með leikjum við Víking R. á Víkingsvelli og leik gegn Fjölni á Fylkisvelli. Við sendum 6 lið til keppni og hefja 5 þeirra leik á laugardaginn. Fyrir jól var ákveðið að senda sex lið í Reykjavíkurmót og Íslandsmót þar sem iðkendur voru rúmlega 50. Nú hefur aðeins dregið úr þátttöku drengjanna á æfingum og nokkrir búnir að ákveða að hætta eða taka sér leyfi fram að sumri. Þetta gerir það að verkum að við stöndum frammi fyrir tveimur valmöguleikum. Annar er að fá aðstoð frá 6.flokki og hinn er að draga eitt lið úr keppni. Okkur þjálfurum hugnast það betur að fá aðstoð og reyna með því að skapa næg tækifæri fyrir alla. Reykjavíkurmótið er ágætis undirbúningur fyrir Íslandsmótið og ætlum við að nota það til að mynda 6 skemmtileg lið fyrir sumarið.

Á laugardaginn er nokkuð um forföll, eitthvað verður fært til í liðum en annars nýtum við aðstoðina frá 6.flokki. Markmiðið er að reyna að halda liðunum sem mest óbreyttum út mótið, en að sjálfsögðu geta menn færst upp og niður eftir frammistöðu í æfingum og leikjum sem og æfingasókn.

Því er nauðsynlegt að þið látið okkur vita strax ef drengirnir ykkar geta ekki tekið þátt svo við getum brugðist við því. Forföll tilkynnast með kommenti hér á bloggið, á facebook síðu flokksins eða með tölvupósti á fylkir55@gmail.com

A-lið Mæting kl. 8:10 á Víkingsvöll. Leikur hefst kl. 8:50

Daníel Bjartmar (m), Axel, Valdimar (c), Leó Ernir, Orri, Stígur, Númi, Ingvar.

B-lið Mæting kl. 9:00 á Víkingsvöll. Leikur hefst kl. 9:40

Ólafur Kristófer (m), Ingvar, Hrannar, Haukur, Jón Orri, Hákon (c), Kári, Ívar Andri.

C-lið Mæting kl. 8:10 á Víkingsvöll. Leikur hefst kl. 8:50 

Jón Hákon (m), Sebastian Óli, Aron Örn, Dagbjartur Alex (c), Mikki (6.fl), Óskar (6.fl), Danni (6.fl), Kristófer Leó.

C2-lið (Riðill C2-lið) Mæting kl. 9:00 á Víkingsvöll. Leikur hefst kl. 9:40

Ríkharður (m), Gabríel Máni, Daníel Aron, Sævar Þór, Baldur, Tindur (c), Valgeir, Dagur Edvard, Ægir.

C3 (Fylkir 2 í C-liða riðlinum). Mæting kl. 12:50 á Fylkisvöll. Leikur hefst kl. 13:30

Strákar úr 6. flokki

D-liðið spilar svo sinn fyrsta leik 26. febrúar!

kveðja

Kjartan og Krissi

Sunday, February 10, 2013

Skilaboð til foreldra


Búið er að uppfæra iðkendalista og keyra inn hjá  Rafrænni Reykjavík og geta foreldrar nú ráðstafað frístundastyrknum. 
Hvetjum við þá sem ætla að nýta sér styrkinn að gera það sem fyrst.
Vinsamlegast sendið póst á fylkir@fylkir.com með upplýsingum um iðkanda og forráðamann ef upplýsingar frá Fylki eru ekki til staðar.  

Einnig vekjum við athygli foreldra á skráningar- og greiðslusíðu félagsins,
https://www.fylkir.com/index.php?option=com_redevent&view=categories&Itemid=282  en þar er hægt að ganga frá greiðslu æfingagjalda.
Einnig er hægt að ganga frá greiðslu æfingagjalda á skrifstofu íþróttafélagsins og afgeiðslu Fylkishallar.

Monday, February 4, 2013

Breyting á æfingu á morgun

Á morgun eru leikir á Fylkisvelli á okkar æfingartíma og því getum við ekki verið með hefðbundna æfingu.

Í staðinn ætlum við að hlaupa einn stífluhring. Allir eiga því að mæta með hlaupaskó kl. 16:45!