N1 mótið á Akureyri verður haldið dagana 3. - 6. júlí. Óhætt er að segja að mótið sé frábær skemmtun fyrir drengina sem og aðra fjölskyldumeðlimi.
Mikilvægt að foreldrar skrái sinn dreng sem fyrst hér á bloggsíðunni svo við höfum nokkuð góða hugmynd um hversu margir drengir ætla að taka þátt í mótinu.
Í skráningarferlinu spyrjum við einnig hvort foreldri hafi áhuga á að vera næturvörður á meðan á mótinu stendur.
Í byrjun júní munum svo við biðja foreldra um að greiða staðfestingargjald og þá vonumst við til að vera búin að raða í stöður liðsstjóra o.fl. störf sem til falla á móti sem þessu.
Skráningarformið má finna hér
Kveðja
Foreldraráð
No comments:
Post a Comment