Monday, May 13, 2013

Stíflan og önnur atriði

Á æfingu þriðjudag 14. maí munum við hlaupa stífluna á æfingu áður en við förum út á völl.
Mæta með hlaupaskó (strigaskó, götuskó)

16:30-18:00

Einnig vil ég árétta ákveðin atriði sem fólk er í vafa um. Allar æfingar framvegis verða á Fylkisvelli, mánudags æfingum í Egilshöll er lokið.

Varðandi séræfingarnar á miðvikudögum þá er þeim lokið í Norðlingaskóla. Við eigum hins vegar einhver skipti eftir þar sem 20 æfingar voru auglýstar þegar námskeiðið var kynnt og eitthvað hefur fallið niður. Þær séræfingar sem eftir eru munu fara fram á Fylkisvelli og verða auglýstar síðar hér á blogginu.

No comments:

Post a Comment