Sunday, May 5, 2013

Vikan framundan

Allar æfingar í maí verða á Fylkisvelli frá 16:30-18:00 (Allir).

Vikan:

Mánudagur (6.5.)    16:30-17:45 (Allir). Æfingin verður aðeins styttri vegna leiks m.fl. karla við Val á Fylkisvelli kl. 19:15 Hvetjum alla stráka og foreldra til að mæta á leikinn og styðja liðið! Frítt inn fyrir alla iðkendur á alla heimaleiki í sumar!
Þriðjudagur (7.5.)    16:30-18:00 (Allir)
Fimmtudagur (9.5.)  16:30-18:00 (Allir)
Föstudagur (10.5.)   Leikir við Val á Fylkisvelli hjá öllum liðum

Kjartan er staddur í USA fram til 16. maí og því verð ég einn með allan hópinn sem getur verið nokkuð snúið.
Sævar þjálfari 6.flokks karla mun reyna að aðstoða mig eftir þörfum í stað Kjartans, siðan ef að foreldrar sem komast á þessum tíma og eru tilbúnir að hjálpa til þá væri það vel þegið. Síðan er Atli sonur Ásgeirs formanns knattspyrnudeildar Fylkis í námi í FB og þarf að skila af sér einhverjum þjálfunartímum og kemur líklega inn fljótlega.

kv
Krissi

1 comment:

  1. Ég kemst ekki á æfingu í dag. Ég er að fara að keppa í karate. Kv. Hrannar Ingi

    ReplyDelete