Monday, June 10, 2013

Markmannsæfingar í sumar

Markmannsæfingar verða á þriðjudögum í sumar fyrir 5.flokk karla frá kl. 12:30-13:30.

Eins og þið vitið erum við ekki með marga markmenn í flokknum sem er vandamál því það þarf að vera markvörður í hverju einasta liði og við verðum með 5 lið bæði í Íslandsmóti og á N1 mótinu. Því er um að gera fyrir þá sem eru að hugsa um að prófa að vera í marki að kíkja á þessar æfingar og athuga hvort að þeir vilji gerast markmenn. Það er líka sjálfsagt að menn geti spilað í marki í einhverjum leikjum og sem útileikmenn í öðrum, eins og við höfum prófað undanfarið.

Markmannsstaðan er ein mikilvægasta staðan á vellinum, ef ekki sú mikilvægasta. Markmaður er aftasti maður í hverju liði og síðasta vonin til að bjarga marki. Hann getur unnið og reyndar tapað leikjum líka fyrir sitt lið. Með þessum orðum erum við þó ekki að setja of mikla pressu á markverðina okkar, því þeir gera mistök eins og allir leikmenn. Mistökin eru til að læra af þeim og menn verða að fá að gera sín mistök, ekki síst þið strákar enda eru þið ennþá í 5.flokki!

Nýráðinn markmannsþjálfari yngri flokka Fylkis er Þorsteinn Magnússon og mun hann stýra þessum æfingum. Þorsteinn hefur mikla reynslu af þjálfun markvarða en hann hefur m.a. unnið fyrir KSÍ með markvörðum yngri landsliða Íslands. Þá var hann m.a. aðalþjálfari meistaraflokks karla hjá Aftureldingu frá 2010-2012 og hefur komið víða við á löngum ferli.

kveðja
þjálfarar


3 comments:

  1. Hákon Ísar kemst ekki á æfingu í dag.

    ReplyDelete
  2. Alexander skrapp í frí út á land

    ReplyDelete
  3. Kemst ekki kv valli

    ReplyDelete