Sunday, July 7, 2013

N1 mótið yfirferð

Sæl öll og takk fyrir frábæra samveru á N1 mótinu á Akureyri!

Mótið var einstaklega skemmtilegt í alla staði og heppnaðist einkar vel hjá okkur Fylkismönnum. Þeir 42 drengir sem tóku þátt í mótinu fyrir hönd Fylkis stóðu sig allir frábærlega og eiga hrós skilið fyrir sína framkomu innan sem utan vallar.

Einnig vil ég hrósa foreldrahópnum sérstaklega sem var afar virkur og stóð sig mjög vel í að halda utan um strákana. Við lentum sjaldan í því að tvö lið væru að spila á sama tíma og því myndaðist einstaklega góð stemming meðal áhorfenda. Foreldrar voru mjög duglegir að mæta og hvetja öll liðin (ekki bara það lið sem þeirra drengur var í) sem klárlega hafði jákvæð áhrif inn á völlinn.

A-liðið lenti í harðri og erfiðri keppni, en við vissum það fyrir mótið að við gætum átt erfitt uppdráttar hvað úrslit varðar. Flestir leikir töpuðust, margir hverjir naumlega og ekki hefði þurft mikið til að margir þeirra færu öðruvísi. Það vantaði örlítið meira sjálfstraust og þor til að taka af skarið og klára leikina. Liðið náði þó í tvö jafntefli og unnu glæsilegan sigur í síðasta leiknum sem var eini leikurinn þeirra á gervigrasi. Þar gekk mun betur að rúlla boltanum á milli manna, enda margir grasvellirnir á mótinu vart boðlegir til knattspyrnuiðkunar! Strákarnir lögðu alla sína orku í leikina, börðust ávallt til síðasta blóðdropa og fengu góða reynslu út úr mótinu, enda er nauðsynlegt að horfa til margra annarra þátta en úrslita leikja. A-liðið endaði í 17. sæti en getur samt sem áður tekið margt jákvætt úr mótinu.

C-liðið spilaði glimrandi góðan fótbolta lengst af og lögðu flesta andstæðinga sína í riðlakeppninni örugglega að velli. Liðið sýndi flott tilþrif bæði í vörn og sókn og léku andstæðinga sína oft grátt. Mörg gullfalleg mörk litu dagsins ljós í öllum regnbogans litum. Sérstaklega var gaman að sjá nokkur mörk eftir hornspyrnur, sem sýnir mikilvægi þess að æfa þessi atriði vel. Eftir að hafa spilað riðlakeppnina á gervigrasi þurftu strákarnir að spila á stuttum og slæmum grasvelli í 8-liða úrslitum. Þar lentu strákarnir á móti liði sem sigraði að lokum á líkamlegum styrk og háum löngum sendingum fram völlinn. Fótboltalega vorum við með betra lið og ég er ekki í nokkrum vafa að C-liðið hefði farið alla leið í mótinu ef það hefði einungis spilað á gervigrasi. Því miður dró aðeins af liðinu síðasta daginn og niðurstaðan varð 8.sæti eftir tap í síðasta leik í vítaspyrnukeppni.

D-liðið byrjaði mótið virkilega vel og spilaði af mikilli ákefð og krafti. Liðið var komið í virkilega góða stöðu fyrir síðustu leikina í riðlinum eftir mjög góða spilamennsku. Þá féllu strákarnir í þá gryfju að velta of mikið fyrir sér úrslitum og leikjum annarra liða í riðlinum í stað þess að einbeita sér að sjálfum sér og sínum leik. Samt mátti ákaflega litlu muna að liðið kæmist í úrslitakeppnina. Liðið kláraði svo mótið með glæsibrag, hristi af sér vonbrigðin og vann báða leikina á laugardeginum. Strákarnir sýndu flott tilþrif í mótinu og til dæmis fær Baldur mikið hrós frá mér fyrir sinn leik sem markvörður, enda nýbyrjaður að æfa mark aftur! Niðurstaðan var 13.sæti en burtséð frá því í hvaða sæti liðið lenti var heildarframmistaða strákanna mjög góð og lítið vantaði upp á til að ná lengra.

E-liðið átti frábært mót og stóð að lokum uppi sem sigurvegari í keppninni. Leikmenn náðu einstaklega vel saman og samheldnin var mikil. Til að geta unnið svona mót þarf að spila bæði sterkan varnarleik og öflugan sóknarleik. Þó að tiltöllulega fáir hafi séð um markaskorun í liðinu þá var hlutverk þeirra sem komu í veg fyrir mörk andstæðinganna jafn mikilvægt. Strákarnir börðust vel fyrir hvorn annan og héldu jákvæðninni og gleðinni allan tímann. Eftir að hafa sigrað flesta leiki nokkuð þægilega í riðlakeppninni, lentu þeir í þremur hrikalega jöfnum leikjum í úrslitakeppninni. Í öllum þessara leikja vannst sigur eftir vítaspyrnukeppni, þar sem strákarnir sýndu mikið hugrekki og þor í að taka vítin og klára þau, auk þess að hafa mjög góðan markmann sem lokaði búrinu. Til að toppa árangurinn var Aron Örn svo valinn besti sóknarmaður E-liða!

F-liðið átti einnig frábært mót og endaði í öðru sæti eftir tap í úrslitaleik. Liðið byrjaði mótið af miklum krafti og vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum. Leikmenn lögðu sig alla fram og sumir hlupu meira en þeir hafa gert allt Íslandsmótið! Strákarnir lentu svo í jafnari leikjum eftir því sem leið á en samt voru þeir sterkari aðilinn í þeim öllum. Ótrúleg óheppni og klaufaskapur upp við mark andstæðinganna kom í veg fyrir að þeir hafi allir unnist. Í undanúrslitunum sýndi liðið svo gríðarlegan karakter með því að sigra 3-2 eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Í úrslitaleiknum féllu hlutirnir með andstæðingnum og því varð annað sætið niðurstaðan, sem er auðvitað frábær árangur. Að lokum er svo vert að minnast á það að Daníel Aron var valinn besti varnarmaður F-liða. Vil ég reyndar meina að hann hafi ekki verið bestur í þessum flokki, heldur langbestur!

Minningarnar um mótið munu lifa um ókomna tíð hjá drengjunum enda stemmingin og gleðin ósvikin. Drengirnir í E-liðinu munu til að mynda aldrei gleyma því að hafa unnið þrjár vítaspyrnukeppnir í röð sem er auðvitað með hreinum ólíkindum að hafi gerst! Þarna voru örlögin sannarlega að verki!

Ég og Kjartan lögðum mikla áherslu á að sinna liðunum vel og miðla til þeirra inn á völlinn. Við reyndum að vera báðir til staðar á hliðarlínunni eftir fremsta megni til þess að hjálpa til og leggja leikina vel upp. Þetta var vissulega mikil viðvera og það tók á líkamann að standa úti á velli leik eftir leik allan daginn, en sú þreyta gleymdist fljótt í harðri og skemmtilegri keppni þar sem strákarnir lögðu sig 100% fram í alla leiki. Meira er ekki hægt að fara fram á!

Við þjálfararnir göngum afar stoltir frá mótinu og sjáum að framtíðin í félaginu er björt með þessa stráka innanborðs. Nú er mikilvægt að halda áfram vel utan um þá þannig að þeir geti vaxið og dafnað sem knattspyrnumenn en fyrst og fremst sem einstaklingar.

Fylkiskveðja

Kristján Gylfi Guðmundsson

1 comment:

  1. Flott yfrirferð hjá þér Krissi, takk sömuleiðis fyrir skemmtilegt mót. Okkar strákur hafði mikið gaman af þessu móti og sýndist mér allir aðrir gera það einnig, ekki síst við foreldrar.

    Kveðja
    Daniel og Heiða

    ReplyDelete