Þá er tímabilinu í 5.flokki karla lokið. Nú tekur við tveggja vikna frí frá æfingum áður en að skiptingin á sér stað. Strákar á eldra ári (fæddir 2001) færast upp í 4.flokk og strákar á yngra ári (fæddir 2002) færast á eldra ár í 5.flokki. Æfingar hefjast að nýju í vikunni 30.sept - 4. okt. Æfingatöflu komandi vetrar má finna á fylkir.com!
Í fyrra fór lokahóf 5.flokks fram í Skálafelli og er góður möguleiki á að það verði gert aftur ef að áhugi er til staðar, nánar auglýst síðar!
Uppskeruhátíð yngri flokka verður svo haldin í Fylkishöll næsta sunnudag 22.september!
Tvö lið af fimm komust í úrslitakeppni Íslandsmótsins að þessu sinni. B-liðið endaði í öðru sæti eftir tap í úrslitaleik gegn Fjölni. Sannarlega frábær árangur að komast alla leið í úrslitaleikinn! C-liðið endaði í 5.sæti sem er einnig virkilega flottur árangur, hlutirnir féllu ekki alveg fyrir þá á laugardeginum, en strákarnir kláruðu mótið með stæl með stórsigri á Njarðvík. D-liðin bæði voru grátlega nálægt því að komast inn í úrslitakeppni og sýndu góða spilamennsku í sumar, sérstaklega seinni hluta móts.
A-liðið hélt sæti sínu að lokum nokkuð örugglega í A-deild en við þjálfarar vissum það fyrirfram að baráttan þar gæti orðið ansi hörð. Liðið lenti í mörgum hörkuleikjum og fékk flotta reynslu sem mun nýtast vel í framtíðinni.
Við þjálfarar þökkum ykkur strákar fyrir skemmtilegan vetur og sérlega skemtmilegt og lærdómsríkt sumar, það var virkilega gaman að vinna með ykkur! Einnig viljum við þakka foreldrum fyrir gott og farsælt samstarf og þá ekki síst foreldraráðinu sem stóð sig með stakri prýði í ár.
Fylkiskveðja
Krissi og Kjartan

No comments:
Post a Comment