Monday, January 27, 2014

Æfing næsta fimmtudag 30. janúar

Sæl öll

Æfingin á fimmtudaginn verður allir saman klukkan 15:00 vegna þess að það er leikur á vellinum kl. 16:00. Æfingin verður tvískipt annars vegar léttar æfingar á vellinum og svo stífluhringur og því mikilvægt að muna eftir góðum hlaupaskóm.
kv.
Óli og Kjartan

Thursday, January 9, 2014

Frá BUR


Kæru foreldrar og forráðamenn,

Gleðilegt nýtt fótboltaár og þakkir fyrir samstarfið á liðnu ári.  Við í barna- og unglingaráði vonum að þið hafið haft það gott yfir hátíðirnar.  Æfingar hófust í gær eftir jólafrí.  Ákveðið var að lengja jólafrí og fella niður fríið á haustin í staðinn, þegar aðstæður til knattspyrnuiðkunar eru yfirleitt miklu betri en í svartasta skammdeginu. 

Nú er komið að því að ganga frá æfingagjöldum fyrir það sem eftir lifir keppnistímabilsins.  Annars vegar er í boði námskeið fyrir tímabilið janúar-september með afslætti, og hins vegar stök námskeið fyrir vetur og sumar. 

Eins og kom fram í fréttum fyrir áramót hækkaði Reykjavíkurborg frístundastyrk um kr. 5.000 og er hann því núna kr. 30.000.  Hægt er að draga hann frá æfingagjöldunum á eftirfarandi hátt.

1.     Farið fyrst í skráningarkerfið hjá Fylki og skráið barnið á viðkomandi námskeið.  Passið að velja rétt námskeið með tilliti til tímabils.

2.     Hakið við „nota frístundastyrk“. 

3.     Farið strax á eftir inn á Rafræna Reykjavík, veljið „Frístundakort“ og „Ráðstöfun styrks“ og ráðstafið fjárhæð. 

4.     Farið aftur í skráningarkerfið hjá Fylki og nú getið þið gengið frá greiðslu að frádregnum frístundastyrk.  Boðið er upp á greiðsludreifingu.

Enn ítarlegri leiðbeiningar er að finna HÉR.  Einnig er hægt að svara þessu bréfi ef spurningar vakna.

Við vonum að þið bregðist hratt við og gangið frá greiðslu.  Sjáumst hress og kát.

Með Fylkiskveðju,

Tuesday, January 7, 2014

Tækninámskeiðið



Tækninámskeiðið byrjar aftur í kvöld á sama tíma og venjulega kl.19
kv.
Óli og Kjartan

Monday, January 6, 2014

Æfing



Fyrsta æfing eftir frí er á morgun yngra ár 15-16 og eldra ár 16-17.
kv.
Óli og Kjartan