Wednesday, February 26, 2014

Næstu leikir í Reykjavíkurmótinu

Sælir strákar

Næstu leikir hjá okkur er svona:
B2 spilar á föstudaginn 28. feb. klukkan 16:00, mæting 15:30 á  Fylkisvelli.
D2 spilar á Laugardaginn 1, mars, 11:40 mæting 11:10 á KR-velli.
A og C  spilar á laugardaginn, 1. mars kl. 14:00, mæting 13:30 Gervigrasið Laugardal.
B1 og D1  spilar á laugardaginn 1. mars kl. 14:50, mæting 14:20 Gervigrasið Laugardal.

Muna að tilkynna forföll á emil til okkur þjálfara, við vitum að þeim þremur sem eru að fara að keppa á skíðum um helgina. Muna að mæta í búning með legghlífar.
kv.
Óli og Kjartan


Monday, February 24, 2014

Skráning á N1 mótið o.fl.

Nú fara hlutirnir að gerast hjá 5. flokki karla og eitt og annað er framundan.

N1 MÓTIÐ

N1 mótið fer fram á Akureyri 2. - 5. júlí. Við vildum opna snemma fyrir skráningar á mótið þetta árið og viljum við benda foreldrum á að hægt er skrá drengina hér. Stefnt er á að rukka staðfestingargjald fyrir byrjun maí. Þegar nær dregur móti verður svo haldinn kynningarfundur þar sem farið verður yfir fyrirkomulag mótsins og hvaða stöður foreldrar þurfa að manna. Í fyrra var kostnaður rúmlega 30 þúsund á dreng og má búast við því að kostnaðurinn verið svipaður í ár, jafnvel eilítið hærri en það kemur í ljós síðar.

Ef ykkar dreng vantar á listann vinsamlegast setjið komment varðandi það hér fyrir neðan.

Rétt er að hvetja alla til að huga að gistingu á Akureyri þar sem mikill fjöldi fólks verður í bænum þessa helgi (Pollamótið er á sama tíma). Tjaldsvæðið verður að sjálfsögðu opið í bænum og mun foreldraráð reyna að ná sama plássi og síðustu ár fyrir þá sem ætla að vera á tjaldsvæðinu.

AUGLÝSINGAR Á BUR FLÍK

 Líkt og síðustu ár hafa drengirnir tækifæri til að selja auglýsingar á BUR flíkina.
Verð fyrir auglýsingu er eftirfarandi:
  • 40 þús. kr. á bak
  • 25 þús. kr. á ermar
  • Þeir sem selja auglýsingu fá 25% af upphæðinni inn á söfnunarreikningnum merktan sínum dreng

KEILA 24. MARS

Við ætlum að hafa keilu og pizzu fyrir strákana í Egilshöll strax eftir æfingu mánudaginn 24. mars. Foreldráð mun senda nánari upplýsingar varðandi kostnað og fyrirkomulag þegar nær dregur.

Fyrir utan þetta er svo stefnt á að hafa skemmtikvöld fyrir strákana (líklegast 12. apríl) og svo seinni fjáröflun tímabilsins um mánaðarmótn mars/apríl.
Foreldraráð mun fjalla nánar um það síðar þegar dagsetningar eru komnar á hreint.

Saturday, February 15, 2014

Leikir á mánudaginn


Það eru leikir á mánudaginn við Víking hjá A, B1, C, D1 og D2. A og C mæta 15:25, leikur hefst 16:00. B og D mæta 16:15, leikur hefst 16:50 og svo mætir D2 klukkan 17:10 og leikur hefst 17:40. Muna að mæta vel stemmdir með legghlífar og klárir í slaginn. Þeir sem eiga ekki treyju geta fengið hana lánaða. Muna að boða forföll á emil til þjálfara. Það er því frí hjá B2 en endilega mætið á völlinn til að hvetja hin liðin.
kv.
Óli og Kjartan

Thursday, February 13, 2014

Liðin í Reykjavíkurmótinu



Þá erum við þjálfara búnir að setja inn liðin fyrir Reykjavíkurmótið sjá hérna til hliðar. B2 á að spila á laugardaginn klukkan 14:00 á gervigrasinu við Egilshöllina og D2 spilar á sama stað og tíma æfingaleik við Fjölnir. Allir eiga að mæta kl. 13:30. Tilkynnið forföll sem allra fyrst með emil á okkur þjálfara.
kv.
Óli og Kjartan

Thursday, February 6, 2014

Minnum á mátun á BUR flík í dag

Minnum á mátun á BUR flík frá kl. 15:30-16:30 í Fylkishöllinni í dag.
Peysan kostar 8.500 kr og samkvæmt fyrirmælum frá BUR á að greiða 4.000 kr. inn á peysurnar þegar flokkurinn leggur inn sína pöntun.
Foreldraráð mun fara yfir hvernig best er að þessu staðið og koma skilaboðum til foreldra.

Wednesday, February 5, 2014

Egilshöll

Sæl öll

Næsta æfing í Egilshöll sem er 10. feb. fellur niður vegna æfingleiks hjá 6. fl.kk.
kv.
ÓS

Monday, February 3, 2014

Mátun á BUR flík fimmtudaginn 6. febrúar

Nú er kominn tími á að drengirnir máti BUR flíkina góðu fyrir þetta tímabil.

Meðlimir úr foreldraráði verða í Fylkishöllinni fimmtudaginn 6. febrúar frá kl. 15:30-16:30 til að taka á móti foreldrum og strákunum og skrá niður lykiltölur.

Kv. Foreldraráð

Reykjavíkurmót

Sæl öll

Við erum búnir að uppfæra linkinn um leikjaprógramið í Reykjavíkurmótinu hérna hægra megin. Ath. að þetta eru ekki endanlegar dagsetningar, þar sem  það á eftir að færa leiki vegna handboltamóta og fleira. Endalegar dagsetningar ættu að koma fljótlega hjá KSÍ.
kv.
Óli og Kjartan