Monday, February 24, 2014

Skráning á N1 mótið o.fl.

Nú fara hlutirnir að gerast hjá 5. flokki karla og eitt og annað er framundan.

N1 MÓTIÐ

N1 mótið fer fram á Akureyri 2. - 5. júlí. Við vildum opna snemma fyrir skráningar á mótið þetta árið og viljum við benda foreldrum á að hægt er skrá drengina hér. Stefnt er á að rukka staðfestingargjald fyrir byrjun maí. Þegar nær dregur móti verður svo haldinn kynningarfundur þar sem farið verður yfir fyrirkomulag mótsins og hvaða stöður foreldrar þurfa að manna. Í fyrra var kostnaður rúmlega 30 þúsund á dreng og má búast við því að kostnaðurinn verið svipaður í ár, jafnvel eilítið hærri en það kemur í ljós síðar.

Ef ykkar dreng vantar á listann vinsamlegast setjið komment varðandi það hér fyrir neðan.

Rétt er að hvetja alla til að huga að gistingu á Akureyri þar sem mikill fjöldi fólks verður í bænum þessa helgi (Pollamótið er á sama tíma). Tjaldsvæðið verður að sjálfsögðu opið í bænum og mun foreldraráð reyna að ná sama plássi og síðustu ár fyrir þá sem ætla að vera á tjaldsvæðinu.

AUGLÝSINGAR Á BUR FLÍK

 Líkt og síðustu ár hafa drengirnir tækifæri til að selja auglýsingar á BUR flíkina.
Verð fyrir auglýsingu er eftirfarandi:
  • 40 þús. kr. á bak
  • 25 þús. kr. á ermar
  • Þeir sem selja auglýsingu fá 25% af upphæðinni inn á söfnunarreikningnum merktan sínum dreng

KEILA 24. MARS

Við ætlum að hafa keilu og pizzu fyrir strákana í Egilshöll strax eftir æfingu mánudaginn 24. mars. Foreldráð mun senda nánari upplýsingar varðandi kostnað og fyrirkomulag þegar nær dregur.

Fyrir utan þetta er svo stefnt á að hafa skemmtikvöld fyrir strákana (líklegast 12. apríl) og svo seinni fjáröflun tímabilsins um mánaðarmótn mars/apríl.
Foreldraráð mun fjalla nánar um það síðar þegar dagsetningar eru komnar á hreint.

5 comments:

  1. Ármann Arnarsson ávantar á listann

    ReplyDelete
  2. Ármann ætti að vera neðst í yngra árs listanum núna

    ReplyDelete
  3. Það vantar Grím Arnar á listann

    ReplyDelete
    Replies
    1. Grímur ætti að vera í yngra árs listanum núna

      Delete
  4. bt; Þarft þú að tryggt lán 3% vöxtum til að borga skuldir þínar eða víxla eða til að geta fyrirtæki? ef já, þá samband við okkur í dag í gegnum e-mail: bodmanmortgage@gmail.com með neðan upplýsingar um:

    Full nöfn:
    Lán Upphæð Needed:
    Lán Duration:
    Starfsfólk Símanúmer:
    Land:
    mánaðarlega tekjur:

    takk,
    BMF

    ReplyDelete