Sunday, March 30, 2014

Næsta vika

Sælir drengir
Það er æfing á sama tíma og venjulega á morgun upp í Egilshöll en smá breyting á þriðjudag og fimmtudag. Það er leikur á milli Fylkir B1 og Fylkir B2 á þriðjudaginn klukkan 16 (mæting 15:30) allir aðrir eiga því að mæta á æfingu kl. 15:00. Á fimmtudaginn er leikur hjá Fylkir B2 á móti Val á Fylkisvelli kl. 16:00 (mæting 15:30) og þá eiga allir aðrir að mæta á æfingu kl. 15:00.
kv.
Óli og Kjartan

Wednesday, March 26, 2014

Tilkynning til eldra ársins

Drengir fæddir 2002!

Á morgun fimmtudaginn 27. mars ætlum við að hittast eftir æfingu hjá ykkur kl. 17:00 í Tengibyggingunni í Fylkishöll og horfa saman á sketsana sem við tókum upp í Skálafelli sl. haust. Þannig að þið komið beint eftir æfingu upp í höll og við horfum á þetta saman. Við erum búnir að klippa þetta allt saman til og óhætt að segja að þetta sé mjög skemmtilegt  og  "steikt " efni:)

Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir líka ef þeir vilja kíkja á þessa veislu :)

Bestu kveðjur
Kjartan og Krissi fyrrv. þjálfarar 5.fl kk

Leikur hjá B2

Sælir drengir
Leikurinn hjá B2 sem átti að vera núna á fimmtudaginn 27.3 hefur verið frestað að ósk Valsmanna, verður vonandi spilaður í næstu viku.
kv. Óli og Kjartan

Friday, March 21, 2014

Reykjavíkurmót

Sælir
Næstu leikir eru á þriðjudaginn 25. mars hjá öllum liðum nema B2 við Fram í Úlfarsdal

A og C byrja 17:00, mæting 16:30
B1 og D byrja 17:50, mæting 17:20
D2 byrjar 18:40, mæting 18:10.

Muna að mæta í búning og með legghlífar og liðin byrja að hita upp þegar þau mæta á svæðið þar sem við þjálfarar getum ekki séð um það þegar það eru leikir í gangi. Það er æfing hjá B2 á þriðjudaginn á venjulegum tíma. Muna svo eftir keilunni á mánudaginn 24. mars. strax eftir æfinguna í Egilshöll. Muna að tilkynna forföll með email á þjálfara.
Þeir sem eru ekki skráðir í lið en mætu í seinasta leik þeir mæta með þeim liðum aftur!
kv.
Óli og Kjartan

Monday, March 17, 2014

Markmannsæfingar

Sælir markmenn Núna eru markmannsæfingar að byrja aftur og verða á Fylkisvelli á fimmtudögum kl. 17-17:45 kv. Óli og Kjartan

Friday, March 14, 2014

Leikur Reykjavíkurmót

Sælir strákar það eru leikir á mánudaginn 17. mars við Fjölnir á Fylkisvelli hjá A, B1, C, D1 og D2. leikir hjá A og C eru klukkan 16:00 mæting 15:30, B1 og D1 byrja 16:50 mæting 16:20 og svo hefst leikur hjá D2 klukkan 17:40 mæting 17:10. Þegar þið mætið strákar þá eigið þið að byrja að hita upp sjálfir því að við þjálfarar erum að stýra liðunum sem eru að keppa. Muna svo við ætlum að spila boltanum vel á milli okkar og halda honum innan liðsins, eins og við höfum oft talað um þá skorar ekki andstæðingurinn á meðan við erum með boltann. Koma klæddir í keppnisbúning og ekki gleyma legghlífum. kv. Óli og Kjartan

Monday, March 10, 2014

Næsti leikur í Reykjavíkurmótinu

Sælir drengir Þá er komið að næsta leik hjá B2 á miðvikudaginn 12. mars kl. 17 í Safamýrinni. Mæting er klukkan 16:30 og muna að boða forföll með því að senda emil á þjálfara. Mæta klæddir í búning og með legghlífar! ATH. það er aðeins B2 sem spilar á miðvikudaginn önnur lið spila 17. mars. kv. Óli og Kjartan

Wednesday, March 5, 2014

Tilkynning frá BUR vegna skráningar iðkenda

Kæru foreldrar og forráðamenn, Þetta bréf er sent til þeirra sem ekki hafa gengið frá greiðslu æfingagjalda fyrir núverandi keppnistímabil en einnig er afrit sett á blogsíður/facebook fyrir þá sem ekki eru með póstfang skráð í Nora kerfinu. Ef þið hafið nú þegar greitt en eru að fá þennan póst þá vinsamlega hafið samband við skrifstofu Fylkis þannig að hægt sé að leiðrétta það.

Barna- og unglingaráð hefur reynt að halda uppi metnaðarfullu starfi yngri flokka Fylkis í fótbolta. Til þess þarf góða þjálfara sem leggja sig alla fram við að kenna krökkunum okkar að verða betri í fótbolta og um leið, að halda uppi góðum anda svo öllum líði vel og hafi gaman að því að mæta á æfingar og spila leiki.

Grunnurinn að góðu starfi eru æfingagjöldin og þess vegna biðlum við til ykkar að ganga frá greiðslu þeirra fyrir 9. mars á heimasíðu félagsins. Eftir þann tíma munum við senda út greiðsluseðla á þá iðkendur sem ekki hafa gengið frá greiðslum.

Ykkur til upplýsingar er iðkendum ekki heimilt að keppa fyrir hönd félagsins á mótum nema að hafa gengið greiðslu æfingagjalda, eins og kemur fram á heimasíðu félagsins. Frá 1. apríl n.k. munum við virkja þessa reglu í samráði við þjálfara.

Meðfylgjandi eru leiðbeiningar fyrir greiðslu æfingagjalda og ráðstöfun frístundastyrks, sem hækkaður var í 30þkr fyrir 2014.

1. Farið fyrst í skráningarkerfið hjá Fylki og skráið barnið á viðkomandi námskeið.

2. Hakið við "Nota frístundastyrk"

3. Farið strax á eftir inn á Rafræna Reykjavík, veljið "Frístundakort" og "Ráðstöfun styrks" og ráðstafið fjárhæð

4. Farið aftur í skráningarkerfið hjá Fylki og nú getið þið gengið frá greiðslu að frádregnum frístundastyrk. Boðið er upp á greiðsludreifingu.

Þetta er mjög einfalt í notkun. Ef spurningar vakna er hægt að óska eftir aðstoð í Fylkishöll, svara þessu bréfi eða senda beint á okkur.

Kveðja, f.h. BUR

Arnar, Sigfús og Þorvarður