Í næstu viku hefst Knattspyrnuskóli Fylkis , skráning á fylkir.felog.is. Ef þið lendið í vandræðum með skráningu hafið samband við Fylkishöll í síma 571-5601 eða mætið í afgreiðslu Fylkishallar og gangið frá þessu.
Nánari upplýsingar:
Knattspyrnuskóli Fylkis verður starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur og eru námskeiðin opin öllum iðkendum á aldrinum 7-12 ára ( fædd 2007 / 2006 / 2005 / 2004 / 2003/ 2002 ), bæði piltum og stúlkum. Námskeiðin eru virka daga frá kl. 9-12. Á námskeiðunum sjálfum verður iðkendum skipt upp eftir aldri og getu þannig að allir fái verkefni við sitt hæfi.
Sumrinu er skipt niður á tvö námskeið
Námskeið 1 ( 10. júní – 11. júlí ), verð 16.000 kr.
Námskeið 2 ( 5. ágúst – 20. ágúst), verð 10.000 kr.
Hægt er að taka staka viku á hvoru tímabili og kostar það 7.000 kr.
Námskeið 1 ( 10. júní – 11. júlí ), verð 16.000 kr.
Námskeið 2 ( 5. ágúst – 20. ágúst), verð 10.000 kr.
Hægt er að taka staka viku á hvoru tímabili og kostar það 7.000 kr.
Skólastjóri er Kristján Gylfi Guðmundsson.
Við hvetjum pilta og stúlkur til þess að mæta á námskeið sumarsins enda alltaf gleði og gott veður á Fylkisvelli.
Þátttakendur á námskeiðunum mæta með sitt eigið nesti í nestis- og matartímum. Brýnt er fyrir foreldrum að senda börnin með hollt og gott nesti. Aðstaða fyrir nestis- og matartíma er í Fylkishöll. Á síðasta degi hvers námskeiðs er þátttakendum boðið í grillveislu.
Það má kannski bæta því við að hægt er að skrá börnin í íþróttaskóla Fylkis eftir hádegi semsagt fara í kn.skólann fyrir hádegi og kaupa hálfan dag í íþr. skólanum eftir hádegi frá kl.12:00-15:00. Einnig er boðið upp á gæslu eftir námskeið til kl.16:00. Þeim sem eru á æfingum á námskeiðstíma er fylgt á æfingar og sótt aftur eftir að æfingu lýkur
kv.
Skólastjórinn
No comments:
Post a Comment