Friday, June 20, 2014

N1 Mótið - Liðsskipan - Liðsstjórar - Næturverðir

Nú eru nokkrir dagar þar til N1 mótið hefst á Akureyri.

Þjálfarar hafa stillt upp liðunum fyrir mótið og foreldraráð hefur raðað foreldrum upp á vaktir sem liðsstjórar.

Upplýsingar um liðin og liðstjóra má finna hér.

Forsvarsmenn mótsins eru byrjaðir að senda frá sér nánari upplýsingar um fyrirkomulag mótsins og þær má finna hér.

Við treystum foreldrum til að skipta með sér liðsstjóravöktum ef e-r tímasetning hentar ekki e-m. Liðsstjórar þurfa að tryggja að nesti fylgi drengjunum yfir mótsdagana. Mikilvægt er að foreldrar fylgi sínum dreng eftir þó svo að liðstjórar séu skipaðir á hvert lið.

Við sendum svo frá okkur nánari upplýsingar eftir því sem þær berast frá mótsstjórn.

Vefsíðu mótsins má finna hér.

Kv. foreldraráð

1 comment:

  1. Listinn fyrir N1 mótið er hann kominn ??????????

    Kv. Baldur Einarsson

    ReplyDelete