Sælir foreldrar, nú styttist heldur betur í mótið. Upplýsingapakka vegna mótsins er hægt að nálgast hér.
BUR peysan verður afhend við mætingu í Lundarskóla.
Mikilvægt er að drengirnir mæti tímanlega í Lundarskóla (í síðasta lagi kl. 13) svo hægt sé að koma þeim fyrir í skólanum. Liðsstjórar eiga að taka við liðunum kl. 14 þennan dag.
Best er að vekja athygli á því að veðurspáin er ekki spennandi og drengirnir ættu því að hafa nóg af aukafötum með sér.
Þó svo að liðsstjórar séu skipaðir er mikilvægt að foreldrar taki fullan þátt í því starfi sem fram fer á mótinu. Foreldrar eiga að aðstoða liðsstjóra með nestismál og tryggja að nægt nesti fylgi hverju liði yfir daginn
Við sjáumst svo hress á Akureyri og viljum einnig minna foreldra á góða siði og drengilega framkomu á mótinu. Drögum ekki í efa hæfni dómara svo leikmenn heyri til.
Verum okkar félagi til sóma!
Hvetjum svo alla til að mæta í flíkum sem eru í fylkislitunum
Kv. foreldraráð

No comments:
Post a Comment