Thursday, September 25, 2014

Foreldrafundur

Þriðjudaginn 30. september ætlum við að halda foreldrafund hjá 5. flokki karla í tengibyggingunni í Fylkishöll. Fundurinn hefst kl. 20:30 stundvíslega. Nýir þjálfarar kynna sig og fara yfir starfið sem framundan er.

Wednesday, September 24, 2014

Breytingar á æfingatímum

Þriðjudagar
Yngra árið kl. 17:00-18:15
Eldra árið kl. 18:00-19:15

Fimmtudagar
Yngra árið kl. 17:00-18:15
Eldra árið kl. 18:00-19:15


Æfingar á mánudögum hefjast 6. október

Sunday, September 21, 2014

Æfingar í vikunni.

Sæl öll
Nú er nýtt tímabil að hefjast og nýir þjálfarar hafa tekið við.
Æfingar í vikunni

Þriðjudagur kl. 16:15-17:30 drengir fæddir 2004
kl. 17:15-18:30 drengir fæddir 2003
Fimmtudagur kl. 16:15-17:30 drengir fæddir 2004
kl. 17:15-18:30 drengir fæddir 2003

Thursday, September 11, 2014

Takk fyrir okkur

Sæl öll

Við þjálfarar viljum þakka ykkur strákar fyrir alveg frábært timabil, við vorum alveg ótrúlega ánægðir með ykkur bæði í leikjum og síðast en ekki síst á æfingum. Einnig viljum við þakka foreldrum fyrir samstarfið og foreldraráði sem stóð sig alveg frábærlega.

Eins og þið eflaust vitið öll þá verðum við ekki áfram með flokkinn og mun Kjartan Stefánsson og Oddur Ingi taka við flokknum og þar eru á ferðinni alveg frábærir þjálfarar.

Nýtt tímabil hefst eftir helgi þar sem eldra árið flyst upp í 4. flokk og yngra ár verða á eldra ári. Meðfylgjandi er slóð á æfingatíma fyrir flokkana:
http://www.fylkir.com/fotbolti/2014-05-14-11-49-19/aefingatafla-knattspyrnudeildar.html

ATH. þeir strákar sem eru að fara í 4. flokk þið mætið sem hópur 1 til að byrja með.

Hérna er líka slóð inn á hópmyndatökuna sem var tekin í dag:

https://www.flickr.com/photos/aeinar11/

Við viljum einnig minna á uppskeruhátíðina sem er á sunnudaginn kl. 15:00, vonum að sem flestir mæti.


Takk fyrir okkur
kv.
Óli og Kjartan

Tuesday, September 9, 2014

Síðustu metrarnir

Ég vil þakka bæði foreldrum og iðkendum fyrir frábæra ferð á Landsleikinn í kvöld, þvílíkur leikur hjá íslenska liðinu :). Það var sko ekkert slor að enda tímabilið með ferð á svona leik.

Takk kærlega fyrir mig

Hópmyndataka !

Við hittum ykkur næst á fimmtudag þar sem myndataka fer fram á fylkisvellinum. Það er gríðarlega mikilvægt að allir mæti í Fylkis-keppnisbúning, treyju, stuttbuxur, takkaskór, legghlífar.

Myndatakan hefst stundvíslega klukkan 16:30 og stendur til 16:50 (athugið að það er ekki æfing).


Æfingum er hér með lokið á þessu tímabili og tekur því nýtt tímabil við þann 15.september.

Kveðja Kjartan og Óli

Monday, September 8, 2014

Ísland - Tyrkland Þriðjudaginn 9.9.14

Svona verður dagskráin hjá okkur á morgun.

Mæting kl 16 Fylkishöll Pizza
Uppúr kl 17 brottför með rútu frá Fylkishöll
18:45 hefst leikurinn
Heimkoma í Fylkishöll á milli 21 og 21:30 þar sem foreldrar sækja sinn dreng

Allir að mæta í BUR Flíkinni nýju (Bláu) aðrir í bláu ef hægt er.

Muna að taka með 1000 kr fyrir Pizzu og svo eitthvað í sjoppuna en stilla peningum í hóf þar.

Kv. foreldraráð

Tuesday, September 2, 2014

Úrslit hjá D liðinu



Næstu helgi (6. og 7. sept.) eru úrslit hjá strákunum sem spila með D liðinu. Það eru tveir leikir á laugardegi kl 10:50 (mæting 10:20) og svo 14:50 (mæting 14:20) og svo á sunnudegi kl. 10:50 (mæting 10:20). Leikirnir fara fram í Kórnum í Kópavogi. Það væri flott ef allir sem hafa spilað með D liðinu muna skrá sig til leiks á Facebook þegar færslan birtist þar.

Hérna er linkur á úrslitin: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=33190

kv.
Óli og Kjartan

Monday, September 1, 2014

Æfing á morgun og fimmtudag

Sæl öll


Æfing á morgun hjá hópi 1 15:30 og hópi II 16:30

Æfing á fimmtudaginn hjá hópi 1 15:30 og hópi II 16:30

kv.
Óli og Kjartan