Tuesday, September 9, 2014

Síðustu metrarnir

Ég vil þakka bæði foreldrum og iðkendum fyrir frábæra ferð á Landsleikinn í kvöld, þvílíkur leikur hjá íslenska liðinu :). Það var sko ekkert slor að enda tímabilið með ferð á svona leik.

Takk kærlega fyrir mig

Hópmyndataka !

Við hittum ykkur næst á fimmtudag þar sem myndataka fer fram á fylkisvellinum. Það er gríðarlega mikilvægt að allir mæti í Fylkis-keppnisbúning, treyju, stuttbuxur, takkaskór, legghlífar.

Myndatakan hefst stundvíslega klukkan 16:30 og stendur til 16:50 (athugið að það er ekki æfing).


Æfingum er hér með lokið á þessu tímabili og tekur því nýtt tímabil við þann 15.september.

Kveðja Kjartan og Óli

4 comments:

  1. Það er spurning hvort hægt sé að seinka myndatökunni. Það eru svo margir strákar sem eru líka að æfa handbolta og æfingarnar hafa skarast svo mikið undanfarið. Æfingin er kl 16 - 17 hjá þeim í Fylkishöll

    ReplyDelete
  2. Sammála, frábær leikur í gær hjá Íslenska landsliðinu. Einnig sammála tillögu um að seinka myndatökunni vegna handboltans. Vil líka benda á að það er mikilvægt að æfingatíminn frá 15. september muni ekki skarast við handboltann :)

    ReplyDelete
  3. Væri kannski líka hægt að hafa myndatökuna fyrr þ.e. 15:30 - 15:50?

    ReplyDelete
  4. Því miður er ekki hægt að fresta myndatökunni þar sem okkur var úthlutað þessum tíma og verið er að taka myndir af öllum flokkum

    ReplyDelete