Thursday, September 11, 2014

Takk fyrir okkur

Sæl öll

Við þjálfarar viljum þakka ykkur strákar fyrir alveg frábært timabil, við vorum alveg ótrúlega ánægðir með ykkur bæði í leikjum og síðast en ekki síst á æfingum. Einnig viljum við þakka foreldrum fyrir samstarfið og foreldraráði sem stóð sig alveg frábærlega.

Eins og þið eflaust vitið öll þá verðum við ekki áfram með flokkinn og mun Kjartan Stefánsson og Oddur Ingi taka við flokknum og þar eru á ferðinni alveg frábærir þjálfarar.

Nýtt tímabil hefst eftir helgi þar sem eldra árið flyst upp í 4. flokk og yngra ár verða á eldra ári. Meðfylgjandi er slóð á æfingatíma fyrir flokkana:
http://www.fylkir.com/fotbolti/2014-05-14-11-49-19/aefingatafla-knattspyrnudeildar.html

ATH. þeir strákar sem eru að fara í 4. flokk þið mætið sem hópur 1 til að byrja með.

Hérna er líka slóð inn á hópmyndatökuna sem var tekin í dag:

https://www.flickr.com/photos/aeinar11/

Við viljum einnig minna á uppskeruhátíðina sem er á sunnudaginn kl. 15:00, vonum að sem flestir mæti.


Takk fyrir okkur
kv.
Óli og Kjartan

1 comment:

  1. Takk sömuleiðis og gangi ykkur vel jafnt í starfi sem leik í framtíðinni :)

    ReplyDelete