Coerver Coaching Extra er 8 vikna námskeið í hæfileikamótun fyrir alla
drengi og stúlkur í 3. - 6. flokki í knattspyrnu.
Námskeiðið fer fram á æfingasvæði Fylkis og er eingöngu fyrir iðkendur hjá
Fylki. Námskeiðið stendur frá 19. janúar til 13. mars.
Coerver Coaching er æfinga og kennsluáætlun í knattspyrnu sem hentar öllum
aldurshópum, en sérstaklega aldrinum 8-16 ára á öllum getustigum.
Coerver Extra er nýjung hjá Coerver Coaching og hjálpar iðkendum
sérstaklega í sinni hæfileikamótun. Um er að ræða 10 klst af hágæða
æfingum og góðri leiðsögn sem mætir hverjum iðkenda á þeim stað sem
viðkomandi er.
Aðalmarkmið Coerver Coaching er að þjálfa færni, sjálfstraust og
sköpunargleði hjá leikmönnum. Gera leikinn skemmtilegan í æfingum og
leik. Kenna góðan íþróttaanda og virðingu fyrir allt og öllu. Virða
sigur en ekki meir en gott hugarfar og frammistöðu. Bjóða upp á öruggt og
lærdómsríkt umhverfi sem mætir best þjálfunarmarkmiðunum.
Þjálfarar á námskeiðinu eru Heiðar Birnir Torleifsson yfirþjálfari Coerver
Coaching á Íslandi og Kjartan Stefánsson þjálfari 5. flokks karla og 2.
flokks kvenna hjá Fylki.
Verð kr. 8,500,-
ATH 10% systkina afsláttur
Skráning á heidar.torleifsson@coerver.is
Það sem þarf að koma fram er eftirfarandi:
Nafn iðkanda:
Nafn forráðamanns og sími:
Knattspyrnukveðjur,
Heiðar Birnir Torleifsson
www.coerver.is
s. 659-5700
Klukkan hvað og hvaða daga eru æfingarnar?
ReplyDelete