SKRÁNING N1 MÓTIÐ 2015
Skráning á N1 mótið 2015 er hafin.
Vinsamlegast skráið drenginn sem fyrst.
KOSTNAÐUR:
Kostnaður er áætlaður kr. 35.000 og innifalið er BUR
flíkin (peysa með auglýsingum) Staðfestingagjald kr. 10.000 þarf að greiða
fyrir 10 maí, 2015.
Staðfestingagjaldið er óafturkræft, og er forsenda fyrir
þátttöku.
Við sendum út upplýsingar um greiðslutillhögun á staðfestingagjaldinu fljótlega.
ATH að æfingagjöld Fylkis verða að vera greidd til að
taka þátt í N1 mótinu.
HELSTU PUNKTAR:
Foreldrafundur verður haldinn mánudaginn 13. apríl. kl.
20:00, nánar auglýst síðar.
N1 mótið verður haldið 1.-4. júlí á Akureyri.
Hver og einn iðkandi sér um að koma sér til Akureyrar.
Mæting er á Akureyri, miðvikudaginn 1. júlí kl. 13:00,
nánari upplýsingar síðar.
drengirnir gista í skóla á Akureyri.
Leikirnar eru spilaðir á KA svæðinu.
Foreldar og forráðamenn ættu að huga að gistimöguleikum,
Fylki verður úthlutað pláss á tjaldsvæðinu Hömrum.
Heimasíða mótsins árið 2014: http://n1.ka-sport.is/2014/
FJÁRÖFLUN
Við ætlum að setja af stað fjáröflun í næstu viku.
Skil á pöntunum verður 15. mars og afhending vara áætluð
19 mars.
Nánar um það á næstu dögum.
AUGLÝSINGAR Á BUR TREYJUNA
Núna þurfum við að safna auglýsingum á BUR treyjuna sem
strákarnir fá fyrir N1 mótið.
Verð fyrir auglýsinguna er kr. 40.000 og strákurinn fær
sjálfur 25% af andvirði auglýsingar.
Ef þið hafið auglýsingu má senda upplýsingar og logo á valgeir@advania.is
Ef þið hafið auglýsingu má senda upplýsingar og logo á valgeir@advania.is
UPPLÝSINGAR UM KEPPNISBÚNINGANA
Búningasala byrjar hjá JAKO um miðjan mars, fyrstu tvær
vikurnar verður tilboð á settinu. (keppnistreyja, buxur og sokkar). Númerum
verður úthlutað með hlutkesti hjá Fylki, númerið fylgir strákunum á
Reykjavíkurmótinu/Íslandsmeistaramótinu.
Drengir fæddir 2003 fá oddatölu.
Drengir fæddir 2004 fá slétta tölu.
Drengirnir mega ekki skipta innbyrðis á númerum.
No comments:
Post a Comment