Tuesday, April 21, 2015

Árskort Fylkis – Strákarnir eiga að reyna að selja


Strákunum bíðst nú að selja Árskort hjá Fylki.  Sölulaun fyrir hvert kort eru 1.500 kr. Ef seld eru 3 kort eða fleiri af sama aðila fást 2.000 kr. sölulaun fyrir hvert kort.

Strákarnir þurfa að skrá niður:

  • Nafn
  • Kennitölu
  • Netfang
  • Símanúmer 

hjá þeim sem kaupa kortið og skila til okkar í foreldrafélaginu eða á valgeir@advania.is.

SKilafrestur til að skila inn sölutölum er á sunnudaginn 26. apríl kl 23:59


Knattspyrnudeild Fylkis kynnir Fylkiskortið – árskort Fylkis sem veitir í fyrsta sinn veglegan
afslátt hjá völdum fyrirtækjum ásamt aðgangi að öllum heimaleikjum Fylkis í Pepsi – deild
karla og kvenna sumarið 2015. Markmiðið með sölu Fylkiskortsins eru að fjölga
árskortshöfum, fjölga áhorfendum á heimaleikjum félagsins, gera góða stemningu á
heimaleikjum enn betri og fjáröflun fyrir knattspyrnudeild Fylkis og meðlimi hennar.

Allar nánari upplýsingar hér:  Árskort Fylkis 2015 

No comments:

Post a Comment