Kæru foreldrar,
Það var frábært að sjá hvað margir ykkar mættu á undirbúningsfundinn um daginn fyrir N1 mótið. Stuðningur ykkar við strákana er mikilvægur og gerir upplifun þeirra enn meiri og betri.
Mótsgjaldið á N1 er kr. 35.000. Nú er komið að því að greiða restina af mótsgjaldinu, kr. 25.000.
Meðfylgjandi er skjal yfir þá sem eiga fyrir mótsgjaldinu. Ef strákurinn þinn er ekki á listanum en ætlar á N1 mótið og hefur ekki tekið þátt í fjáröflunum skal leggja gjaldið inn á bankareikning okkar, 535-05-400350 með kennitölu 571083-0199 með nafni stráksins í tilvísun. Sumir eiga eitthvað upp í mótsgjaldið (eiga inneign á bilinu 0-25þkr) og skal þá hafa beint samband við mig og ég gef ykkur upplýsingar um stöðu inneignar.
Ganga þarf frá greiðslu fyrir MIÐVIKUDAGINN 3. JÚNÍ.
Um leið og við þökkum þeim sem söfnuðu auglýsingum skal undirstrikað að 25% af tekjum hverrar auglýsingar ganga til þeirra sem söfnuðu auglýsingunni, og staða þeirra stráka tekur mið af því. Reikningar hafa verið sendir á umrædd fyrirtæki og er vonast eftir skilvísum greiðslum.
Ef eitthvað er óljóst eða spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við mig. Ég verð í sveitinni um helgina og er ekki viss um netsambandið þar en þið getið alltaf sent mér prívat skilaboð hér á Facebook og ég svara þeim eftir bestu getu, í síðasta lagi seinni partinn á sunnudaginn.
Hlekkur á skjalið:
SKJALIÐ YFIR ÞÁ SEM EIGA FYRIR N1 MÓTINU
Kveðja,
Sigfús

No comments:
Post a Comment