Tuesday, April 26, 2016

SKRÁNING N1 MÓTIÐ 2016


Vinsamlegast smellið á eftirfarandi hlekk til að skrá strákinn á N1 mótið á Akureyri 2016.
Mótið verður haldið dagana 29.06-02.07.

UPPLÝSINGAR UM INNEIGN TIL AÐ GREIÐA FYRIR MÓTIÐ ER Í SKRÁNINGASKJALINU (GRÆNN DÁLKUR)
Hlekkur á skráningaskjal hjá foreldrafélaginu


Hér má svo má finna heimasíðu mótsins:
Heimasíða N1 mótsins


kveðja,
foreldrafélagið

Wednesday, February 3, 2016

Æfingaferð í Hveragerði 20-21 febrúar 2016

Núna er allt að verða klárt fyrir æfingaferðina í Hveragerði.
Strákarnir eiga að mæta í grunnskólann í Hveragerði kl 11:00 á laugardagsmorgun.
Foreldrar sjá sjálfir um að koma sínum dreng til og frá Hveragerði.

Á laugardeginum verður æfingamót sem byrjar kl 12:00-16:00 í "uppblásnu" höllinn í Hveragerði og við hvetjum foreldra til að mæta og horfa á æfingamótið á laugardaginn.

Við óskum eftir 4-5 foreldrum/forráðamönnum af yngra árinu til að vera með okkur þessa daga og gista með strákunum, vinsamlegst hafið samband við Snæbjörn (sii@mi.is) ef þið hafið áhuga.

Sjá nánar dagskrá hér að neðan.

Það þarf að sækja strákinn á sunnudeginum í skólann  kl 12:00.


SKRÁNING:
Vinsamlegast skráið iðkandann í skjalið hér að neðan:
Skráningaskjalið


GISTING:
Við munum gista á skólanum á laugardagsnóttina.
Allir þurfa að koma með svefnpoka/sæng og dýna og lak.


FERÐATILHÖGUN:
Foreldrar sjá sjálfir um að koma sínum dreng til og frá Hveragerði.
Mæting er í Grunnskólann í Hveragerði (Skólamörk 6)

SKIPULAG:
Við gerum ráð fyrir að 10-12 fullorðnir fari með auk þjálfara.
Við óskum eftir 4-5 foreldrum/forráðamönnum af yngra árinu til að vera með okkur þessa daga og gista með strákunum, vinsamlegst hafið samband við Snæbjörn (sii@mi.is) ef þið hafið áhuga.


KOSTNAÐUR:
Verð er 6.000 kr. á hvern iðkanda.
Hægt er að greiða með eftirfarandi hætti:
1. Mæta með pening á laugardeginum.
2. Leggja inn á reikning foreldrafélagsins: 0535-05-400350, kt. 571083-0199 og senda kvittun á ragnar.arnason@advania.is Muna að setja nafn drengs í skýringu og mæta með kvittunina
3. Nota inneign úr fjáröflunum, þá þarf að láta Ragnar Pál gjaldkera vita með tölvupósti á netfangið ragnar.arnason@advania.is


MATUR:
Innifalið er morgunmatur í skólanum, pizzuveisla, sund og millimál.
Strákarnir þurfa ekki að koma með nesti en koma saddir á laugardeginum.


HAGNÝT ATRIÐI:
Það er hiti í höllinni.
Svefnpoki eða sæng og koddi og dýna.
Vera með góða skó og klæðnað eftir veðri, það verður labbað á milli staða.
Regn- /vindgalli, úlpa, Hlý peysa, Húfa.
Sundföt og handklæði.
Nærföt, Þvottapoki
Tannbursti, Tannkrem, Sápa / Sjampó
Félagsgalli
Keppnisskór og Legghlífar
Stuttbuxur og sokkar
Aukabuxur, Vettlingar
Vatnsbrúsi


DAGSKRÁ:
Laugardagur (20. febrúar):
11:00 Mæting í skólann á laugardaginn
  -Foreldrar koma þeim fyrir og skutla þeim upp í höll fyrir kl. 11:45 á mótið
  -Hvetjum foreldra til að mæta á mótið til að horfa á leikina.
  -Það verður ekki matur fyrir æfinguna, strákarnir eiga að mæta saddir.
12:00-16:00 Móti í höllinni
  -Millimál eftir æfingu í íþróttahúsinu (samlokur/ávextir/smurt í höllinni)
  -Labbað í sund (muna eftir skóm fyrir labbið)
16:00-18:00 Sund
  -Eftir sund verður labbað í pizzuveisluna á Hoflandssetrinu
18:30-20:00 Pizzuveisla í Hoflandssetrinu
  -Eftir pizzaveisluna verður labbað aftur í skólann á kvöldvöku
20:30-22:00 Kvöldvaka í skólanum
  -Millimál, ávextir og eitthvað fleira
-------------------------------------------------------------------------------------------
Sunnudagur (21. febrúar):
08:00-09:00 Morgunmatur í skólanum
  -Morgunmatur í skólanum
09:30-11:00 Æfing í höllina
  -Allir að mæta tímanlega
  -Hvetjum foreldra til að mæta á mótið til að horfa á leikina.

 Eftir mótið þarf að sækja drengina í skólann kl 12:00