Þjálfarar í 5. flokki karla og kvenna ætla í samvinnu við
foreldraráðin að bjóða öllum iðkendum í 5.flokki upp á séræfingar í vetur. Vegna
fjölda óska um séræfingar og aukið æfingamagn ætla þjálfarar að bjóða upp á
tvö námskeið. Fyrra námskeiðið nær frá október til jóla eða alls 10 skipti. Seinna námskeiðið nær frá janúar til loka apríls um 10 skipti.
Áhersla verður fyrst og fremst lögð á að bæta tæknilega
getu iðkenda. Þessi aldurshópur er á besta hreyfinámsaldrinum, skilyrði til tækniþjálfunar
eru afar góð og svigrúm til framfara er mikið. Áhersla verður lögð á fáa þætti
þar sem hlutirnir verða endurteknir aftur og aftur. Þetta stendur iðkendum til
boða gegn mjög vægu gjaldi, sérstaklega ef litið er til ýmissa námskeiða sem í
boði eru annarsstaðar.
Drengir æfa á miðvikudögum kl. 19:00 – 20:00 í
Norðlingaholtsskóla.
Þjálfari á námskeiðinu er Kjartan Stefánsson
Námskeið 1. kostar 6.000 kr.
Námskeið 2. kostar 6.000 kr.
Námskeið 2. kostar 6.000 kr.
Skráning fyrir 5.flokk karla fer fram með því að senda
tölvupóst með nafni iðkanda á kjartanstef@yahoo.com
No comments:
Post a Comment